Jóhanna: Við þurfum að breikka faðminn 26. júní 2010 13:49
Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi flokksins að fjögur höfuðmál muni skipta miklu máli um þróun málefnagrundvallar flokkakerfisins á næstu árum og heildarhagsmuni þjóðarinnar. Innganga í Evrópusambandið, að festa auðlindir í stjórnarskrá sem sameign þjóðarinnar, nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi og ný stjórnarskrá eru mál af þessu tagi að mati Jóhönnu og segir hún að flokkurinn eigi að taka forystu í þeim efnum. Öll þessi mál vill Jóhanna leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslum. Að sögn Jóhönnu þarf flokkurinn einnig að breikka faðminn og bjóða fleiri velkomna í flokkinn. „Ég nefni ESB í þessu sambandi - eitt mikilvægast mál næstu ára. Samfylkinginn er eini flokkurinn sem hefur skýra stefnu í þessu máli en aðrir flokkar, þrátt fyrir skiptar skoðanir innan þeirra raða berjast í raun gegn þessu grundvallar hagsmuna máli Íslands. Ég nefni átökin um náttúruauðlindir Íslands - vatnið, jarðhitann, fiskinn og aðrar gjafir náttúrunnar. Skynsamleg nýting þessara auðlinda, samfara réttlátri skiptingu arðsins meðal þjóðarinnar, er eitt af stærstu verkefnum stjórnmálanna á komandi árum. Þá vakt verðum við jafnaðarmenn að standa af einurð - mun betur en við höfum gert á undanförnum árum. Íhaldið hefur allt of lengi komist upp með að standa í vegi fyrir því að risastór hagsmunamál þjóðarinnar nái fram að ganga. Það á ekki síst við um að auðlindirnar verði bundnar í stjórnarskrá sem sameign þjóðarinnar," sagði Jóhanna í ræðu sinni. „Nú er hinsvegar okkar tími kominn - sem forystuafl í ríkisstjórn að ná þessu markmiði." Jóhanna vill að Samfylkingin heiti því að það verði í forgangi að festa auðlindirnar sem almannaeign í stjórnarskránna áður en næst verður gengið til kosninga. „Heitum því að stýra umsóknarferlinu við ESB í farsæla höfn. Heitum því að þjóðin fái nýja stjórnarskrá á vakt okkar í stjórnarráðinu. Heitum því, góðir félagar, að þjóðin fá nýtt sanngjarnt fiskveiðistjórnunarkerfi sem þjóni almannahagsmunum en ekki sérhagsmunum á meðan við stýrum þessari þjóðarskútu. Öll þessi mál eigum við að leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslum. Um þau á þjóðin að kveða upp sinn dóm. Þessi fjögur mál verða okkar stóru verkefni og markmið á næstu misserum." „Ég ber mína ábyrgð" Jóhanna sagði að vissulega séu spennandi og sögulegir tímar framundan. „Mun þjóðin vilja eitt kjördæmi? Mun þjóðin vilja tíðar þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál og færa þannig valdið til fólksins? Mun hún vilja sameign þjóðarinnar á auðlindum? Mun þjóðin vilja þjóðkjörin forsætisráðherra og afnám forsetaembættis? Mun þjóðin vilja stjórnarskrárbundið bann við þátttöku í stríði?," spurði Jóhanna. „Ég ber auðvitað mína ábyrgð sem formaður flokksins. Sjálfsagt má rekja miður góða útkomu flokksins víða um land til þeirra erfiðu verka sem ríkisstjórn mín stendur í og vafalaust hefði ég getað staðið mig betur sem formaður ykkar og forsætisráðherra." Að sögn Jóhönnu er hinsvegar engan bilbug á sér að finna á meðan hún nýtur trausts flokksfélaga. „Undan þeirri ábyrgð skorast ég ekki." „Okkur Íslendingum hefur verið seld sú hugmyndafræði að ríkisrekstur sé af hinu illa - samfélagsþjónusta sé vond og markmið stjórnmálanna ætti að snúast um að lámarka umfang ríkisins," sagði Jóhanna að auki. „Við í Samfylkingunni höfum mengast um of af þessari hugmyndafræði - svokölluðum Blair-isma - og við höfum gengið allt of langt í þá átt að tala samfélagsþjónustuna niður. Ég tek Íbúðalánasjóð sem dæmi í þessum efnum - hvar værum við stödd í dag, ef Íbúðalánasjóðs hefði ekki notið við og einkaaðilar hefðu tekið allan markaðinn yfir eins og íhaldið hefur ítrekað reynt. Einkaaðilar áttu að sjá um háskólana, sjúkrahúsin, heilsugæsluna, leikskólana, grunnskólana, framhaldsskólana, löggæsluna. Allt var betur komið í höndum einkaaðila að mati íhaldsins og af þessu eimir enn. Við þurfum að standa með samfélagsþjónustunni - standa með okkar sameiginlegu samfélagsverkefnum og tala þeirra máli. Þar getum við og eigum að standa okkur betur en á liðnum árum og á sama tíma að virkja markaðsöflin í þágu almannahagsmuna." „Fólkinu sem sér aðild að Evrópusambandinu og upptöku Evru sem hina réttu leið. Fólkinu sem vill standa vörð um eignarhald þjóðarinnar á auðlindum landsins og sjálfbæra nýtingu þeirra þjóðinni til hagsbóta. Fólkinu sem vill kröftuga uppbyggingu sjálfbærs atvinnulífs, þar sem hagur launþega og samfélagsgildi eru í hávegum höfð í stað einstaklingshagsmuna og ofsagróða. Fólkinu sem vill að Ísland verði fyrirmyndarríki í mannréttindamálum, jafnréttismálum, lýðræðisþróun og baráttu fyrir hagsmunum og kjörum þeirra sem lakast standa. Við eigum að leita til þessa fólks, bæði í gegnum flokksstarf, viðhorfshópa, laustengd félög og með öllum þeim ráðum sem við höfum. Við þurfum að vinna með þeim sem styðja baráttumálum okkar jafnaðarmanna við hvert mögulegt tækifæri."
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Fleiri fréttir Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent