Innlent

Skarphéðinn Berg: Fóru offari með stuðningi fjármálaráðherra

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Skarphéðinn Berg Steinarsson
Skarphéðinn Berg Steinarsson Mynd/Heiða Helgadóttir

Skarphéðinn Berg Steinarsson segir skattinn hafa farið offari gegn sér og að yfirvöld hefðu aldrei ráðist í kyrrsetningu eigna án stuðnings fjármálaráðherra, en Hæstiréttur felldi úr gildi kyrrsetningu eigna hans. Skattrannsóknarstjóri svarar ekki skilaboðum fréttastofu.

Tollstjóri fór fram á kyrrsetningu á eignum Skarphéðins vegna rannsóknar skattrannsóknarstjóra á vangreiddum virðisaukaskatti í rekstri FL Group, sem heitir Stoðir í dag, á árunum 2006 og 2007 en Skarphéðinn var stjórnarformaður félagsins. Sýslumaður féllst á beiðnina og voru innstæður, fasteign og bíll Skarphéðins kyrrsettar í framhaldinu. Héraðsdómur taldi kyrrsetninguna ólögmæta og var úrskurðurinn staðfestur með dómi Hæstaréttar.

Skarphéðinn Berg segir að vinnubrögð skattrannsóknarstjóra og tollstjóra hafi einkennst af fúski og að yfirvöld hafa farið of geyst gegn sér.

„Algjörlega of geyst, byrja á því að leka því kerfisbundið að þetta sé í bígerð og fara síðan offari í framkvæmdinni á þessari lagagrein, gera ráð fyrir að þetta sé opið veiðileyfi á allt og alla. Í ljós kemur síðan, sem flestir vissu, að svona heimildir á að nota og túlka mjög þröngt," segir Skarphéðinn Berg.

Hefur þetta valdið þér tjóni? „Að sjálfsögðu. Ég og mínir nánustu höfum orðið fyrir óþægindum vegna þessa og ég er að skoða hvort ég geri eitthvað í þeim málum."

Skarphéðinn segir það yfirleitt afar umdeilt að hægt sé að krefjast kyrrsetningar á eignum starfsmanna eða stjórnarmanna í fyrirtækjum vegna meintra vangreiddra skattgreiðslna. FL Group hafi notið ráðgjafar til að komast hjá tvísköttun og það sé deilt um hvort fyrirtækið hafi yfirleitt ekki staðið rétt að skattgreiðslum. Sá ágreiningur sé ekki til lykta leiddur.

Þegar úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um að fella úr gildi kyrrsetningu eigna Skarphéðins Bergs lá fyrir sagði Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri, í samtali við fréttastofu RÚV að niðurstaðan væri vonbrigði.

Skarphéðinn Berg segir að stjórnvöld hafi gefið út skotleyfi á menn sem tengjast fyrirtækjum sem stóðu framarlega í útrásinni.

„Þessi embætti sem þarna áttu í hlut voru vel studd áfram af fjármálaráðuneytinu og það er alveg ljóst að þau hefðu ekki ráðist í þessar aðgerðir án þess að hafa stuðning frá fjármálaráðherra. Þannig að stjórnvöld eru klárlega að fara offari í þessu máli."

Fréttastofa hefur nú í morgun ítrekað reynt að ná tali af Bryndís Kristjánsdóttur, skattrannsóknarstjóra, en hún hefur ekki svarað skilaboðum fréttastofu. Þess ber þó að geta að ráðist var í kyrrsetningu eigna Skarphéðins í tíð Stefáns Skjaldarssonar sem sinnti embættinu í fjarveru Bryndísar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×