Fékk kaffihús að gjöf á afmælisdaginn 22. júní 2010 04:30 Gestir snæða úti í sólinni á verönd hlöðunnar. „
Þetta hefur verið draumur hjá mér í mörg ár,“ segir María Sigurðardóttir, afmælisbarn og kaffihúsaeigandi á Hvammstanga. Eiginmaður Maríu, Örn Gíslason, gaf henni kaffihúsið í afmælisgjöf þegar hún varð fimmtíu og tveggja ára og fékk það nafnið Hlaðan. Eins og nafnið gefur til kynna er kaffihúsið hýst í gamalli hlöðu en húsið var byggt árið 1928. „Ég átti hugmyndina að kaffihúsinu,“ segir María. „En það hvarflaði aldrei að mér að ég myndi verða ein í þessu.“ Eiginmaður Maríu gaf henni afmælisgjöfina þegar stóð til að undirrita leyfið fyrir kaffihúsið. „Hann sagði mér bara að skrifa undir þetta ein og tilkynnti hann mér að það væri ég sem ætti þetta. Ég bjóst engan veginn við því,“ segir María sem er himinlifandi með þessa sérstöku afmælisgjöf. Hlaðan er mikið fjölskyldufyrirtæki, en María afgreiðir þar, eldar og sér um rekstur. Tvö barnabörn hennar aðstoða hana við ýmis störf og móðir hennar, Torfhildur Sveinsdóttir, áttatíu og tveggja ára, saumaði svunturnar og málaði öll myndverk á veggjunum. Kom hún einnig með hugmynd að svokölluðum blómapottalömpum sem eru heimagerð ljós og notuð inni á kaffihúsinu. Sonur Maríu sá um að leggja og tengja allt rafmagn á staðnum og maðurinn hennar sá að miklu leyti um smíðavinnuna. María segist ekki vera búin að ákveða fastan opnunartíma, en hún ætli að vera frjálsleg í þeim efnum og leyfa því að fara eftir því hvað verði mikið að gera. Þó segir hún að reksturinn hafi gengið vonum framar síðan hún opnaði 16. júní. „Það er búið að vera alveg brjálað,“ segir María. „Það er nánast búið að vera fullt út úr dyrum síðan ég hélt opnunarhátíðina.“ María bauð öllum í sýslunni til veislu þegar Hlaðan var opnuð í fyrsta sinn og bauð upp á kaffi, kökur, heimabakað brauð og ýmislegt annað góðgæti. Hún bakar allt brauð sjálf sem hún ber fram á kaffihúsinu og leggur mikla áherslu á heimagerðan mat. Í hádeginu er til að mynda súpa dagsins og nýbakað brauð á boðstólum og er það mjög vinsælt meðal matargesta. Margrét segir að þótt gjöfin hafi komið sér á óvart, sé hún þó vön stórum og stæðilegum afmælisgjöfum frá manninum sínum. „Hann hefur þrisvar gefið mér bíl,“ segir hún. „Það hlýtur bara að verða flugvél næst.“sunna@frettabladid.is
Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent