Innlent

Ákærendur óttast óvissu og tímaskort

Valtýr Sigurðsson segir það skjóta skökku við ef byggt er upp opinbert embætti nú þegar verið er að fækka stofnunum.
Valtýr Sigurðsson segir það skjóta skökku við ef byggt er upp opinbert embætti nú þegar verið er að fækka stofnunum.

„Vilji menn setja tugi milljóna króna í nýtt embætti héraðssaksóknara þá þarf að fara að undirbúa það af krafti. En ég er þeirrar skoðunar að þetta verði aldrei.“ Þetta segir Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari.

Fyrr í mánuðinum efndu Ákærendafélagið og ríkissaksóknari til fundar þar sem þetta nýja embætti var til umræðu. Í ályktun sem fundurinn samþykkti samhljóða segir að í lögum frá 2008 um meðferð sakamála sé gert ráð fyrir að ákæruvaldið skiptist í þrjú stjórnsýslustig í stað tveggja áður. Um verður að ræða ákæruvald lögreglu, héraðssaksóknara og ríkissaksóknara. Ákvörðun um stofnun embættis héraðssaksóknara var frestað tímabundið, fyrst til janúar 2010 og síðan til janúar 2012.

„Fundur ákærenda og ríkissaksóknara skorar á dóms- og mannréttindaráðherra að hefja þegar undirbúning að stofnun embættisins ef til stendur að koma því á laggirnar,“ segir í ályktuninni. „Að öðrum kosti verði fallið frá þessu fyrirkomulagi og lögum breytt til samræmis við það.“

Fundurinn bendir á að erfitt sé að byggja upp ákæruvaldið í landinu meðan óvissa ríki um þetta mál, en fjölmörg atriði tengist breytingunni.

„Eigi embætti héraðssaksóknara að taka til starfa 1. janúar 2012 þarf að hefjast handa án tafar með undirbúning þess, svo sem með því að skilgreina starfsmannafjölda, útvega húsnæði og tryggja nægilegt fjármagn. Fundurinn bendir á að frekari frestun á stofnun embættisins sé ekki forsvaranleg.“

Ríkissaksóknari segir marga hluti hanga á spýtunni varðandi uppbyggingu ákæruvaldsins.

„Það gengur ekki að fresta þessu reglulega,“ segir hann. „Skatta- og efnahagsbrotadeild á samkvæmt lögunum að vera deild í embætti héraðssaksóknara. Þá er verið að breyta lögreglulögum í þá veru að frá 1. janúar 2012 verði umdæmin sex í stað fimmtán. Ég hef bent á að það þurfi ekki sérstakt héraðssaksóknaraembætti til að hafa umsjón með sex lögreglustjóraembættum, heldur ætti að efla ákæruvald lögreglunnar.“

Ríkissaksóknari segir það sitt mat að það skjóti skökku við ef eigi að byggja upp opinbert embætti þar sem verið sé að fækka stofnunum og sameina þær um allar trissur á sama tíma.

jss@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×