Ekkert samráð verið haft um skattamál 22. júní 2010 00:01
Starfshópur fjármálaráðherra um breytingar á skattkerfinu hefur ekki enn hitt samráðshóp hagsmunaaðila um málið, þrátt fyrir að hafa verið starfandi í tvo mánuði. Hópurinn á að skila áfangaskýrslu eftir rúmar þrjár vikur, 15. júlí. Hópurinn var skipaður 19. apríl og skal hann móta og setja fram heildstæðar tillögur um breytingar og umbætur á skattkerfinu. Allir fulltrúar voru ráðherraskipaðir og Maríanna Jónasdóttir, starfsmaður fjármálaráðuneytisins, veitir honum formennsku. Þá starfar Indriði H. Þorláksson með hópnum. Samhliða starfshópnum skyldi skipuð samráðsnefnd með fulltrúum vinnumarkaðarins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka fjármálafyrirtækja og þingflokkum allra flokka sem yrði vettvangur upplýsingamiðlunar og skoðanaskipta fyrir starfshópinn. Samtök atvinnulífsins (SA) skipuðu fulltrúa í hópinn fyrir nokkru. Vilhjálmur Egilsson, formaður samtakanna, segir enga fundi hafa verið boðaða. „Þetta hljómar eins og menn séu búnir að ákveða hvað lagt verður til," segir hann og óttast að lítið samráð verði haft. Önnur samtök hafa einnig tilnefnt sína fulltrúa. ASÍ dró sinn mann úr nefndinni fyrir allnokkru. Einn heimildarmanna blaðsins sagði hagsmunaaðila hafa sóst árangurslaust eftir fundi frá miðjum maí. „Við höfum ekki enn hitt samráðshópinn enda ýmsir ekki enn búnir að skipa sína fulltrúa í hann," segir Hrannar B. Arnarsson, fulltrúi forsætisráðherra í hópnum. Hann segist eiga von á því að allt verði klárt í næstu viku og þetta komi ekki niður á starfinu. Ekki náðist í formann starfshópsins við vinnslu fréttarinnar. „Ég man ekki eftir að hafa fengið erindi um að tilnefna í hópinn," segir Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins. Hann segist hafa ádrátt um að erindið hafi verið sent Siv Friðleifsdóttur, en það ekki borist henni. Siv hætti sem þingflokksformaður fyrir rúmu ári. Gunnar Bragi segir að þingflokkurinn muni tilnefna sinn fulltrúa þegar þing kemur saman á fimmtudag.- kóp, jab
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Velja Viljandi villt Innlent Fleiri fréttir Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent