Reglugerð sett um styrk brennisteinsvetnis 22. júní 2010 11:20
Umhverfisráðherra hefur sett reglugerð um leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að markmið reglugerðarinnar sé að draga úr mengun brennisteinsvetnis frá jarðhitavirkjunum og mögulegum neikvæðum áhrifum hennar á heilsu fólks. Brennisteinsvetni hefur mælst í mun meira magni síðustu ár á höfuðborgarsvæðinu eftir að nýting jarðhita var aukin á Hellisheiðarsvæðinu en brennisteinsvetni getur haft áhrif á heilsu fólks, gróður og mannvirki að sögn ráðuneytisins. Kvartanir frá almenningi Í tilkynningu segir að einnig hafi borist mikið af kvörtunum frá almenningi vegna óþæginda og sterkrar lyktar af brennisteinsvetninu. Hingað til hafa vinnuverndarmörk verið einu mörkin sem sett hafa verið um styrk brennisteinsvetnis hér á landi en að sögn ráðherra hafa þau mörk ekki þótt nothæf viðmið til að tryggja að almenningur verði ekki fyrir áhrifum. Í nýju reglugerðinni eru heilsuverndarmörk brennisteinsvetnisins sett við 50 míkrógrömm í rúmmetra að meðaltali fyrir hverjar 24 klukkustundir. Gefið er ákveðið aðlögunartímabil þar sem leyfirlegt verður að fara yfir mörkin fimm sinnum á ári en frá og með 1.júlí 2014 verður alfarið óheimilt að fara yfir þessi mörk. Mörk Alþjóðlegu heilbrigðisstofnunarinnar eru 150 míkrógrömm í rúmmetra og eru þau sett með tilliti til mögulegra bráðaáhrifa á augu en ekki langtímaáhrifa á heilsu fólks. Umhverfisráðherra segir óvissu ríkja um heilsufarsáhrif af langvarandi innöndun brennisteinsvetnis og því hafi hún talið nauðsynlegt að setja mörkin þannig að almenningur fái notið vafans. Samkvæmt reglugerðinni eiga fyrirtæki sem reka jarðvarmavirkjanir að setja upp mælistöðvar og fylgjast betur með losun brennisteinsvetnis en hingað til hefur verið gert. Með því á að tryggja nægilegar og samræmdar mælingar á styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti og að þeim upplýsingum sé miðlað til almennings. Fyrsta skrefið Umhverfisráðherra segir að reglugerðin sé aðeins fyrsta skrefið í að draga úr mengun frá jarðvarmavirkjunum. Í ráðuneytinu sé nú verið að meta hvort setja þurfi fyrirtækjum sérstök losunarmörk sem yrðu strangari en mörk um leyfilegan styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira