Samorka hraunar yfir umhverfisráðherra 2. febrúar 2010 12:50 „
Ráðherrann hefur áður tafið þetta ferli með vísan í formsatriði er varðar auglýsingar á breyttu skipulagi. Getur hugsast að ráðherrann sé einfaldlega á móti því að farið verði í þessar framkvæmdir? Er ráðherrann þá e.t.v. vanhæfur þegar kemur að endurteknum úrskurðum um formsatriði í þessu máli?"Þetta segir í grein á vefsíðu Samorku þar sem fjallað er um ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um virkjanir í neðri hluta Þjórsár. Greinin er hörð árás á umhverfisráðherra.Orðrétt hljóðar greining svo: „Umhverfisráðherra hefur synjað staðfestingar skipulagsbreytingum sem snúa að virkjunum í neðri hluta Þjórsár, að sögn þar sem þátttaka Landsvirkjunar í kostnaði sveitarfélaga við skipulagsvinnu hafi stangast á við skipulags- og byggingarlög.Annars vegar er um að ræða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, sem ráðuneytið telur sér ekki heimilt að staðfesta. Hins vegar er um að ræða aðalskipulag Flóahrepps 2006-2018, sem ráðuneytið samþykkir að öðru leyti en því sem snýr að virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Nú liggur fyrir að sveitarfélögin og framkvæmdaaðilinn gerðu sína samninga í góðri trú.Hugsanlega er þó ástæða til að styrkja lagaheimild fyrir slíkri kostnaðarþátttöku framkvæmdaaðila í skipulagslögum. Við blasir að ekki verður við það fyrirkomulag unað að fámenn sveitarfélög þurfi sjálf að kosta nauðsynlega skipulagsvinnu vegna framkvæmda sem e.t.v. eru þjóðhagslega mjög hagkvæmar, þótt sjálft sveitarfélagið hafi ekki af þeim miklar beinar tekjur. Það gæti einfaldlega þýtt að ekkert yrði úr neinum slíkum framkvæmdum. En er þetta raunveruleg ástæða synjunar ráðherra? Ástæða er til að efast um það, sem og að staldra við ýmis atriði í málflutningi ráðherrans í viðtali við Fréttablaðið.Umhverfisráðherra segir úrskurðinn í raun hafa verið „borðleggjandi". Engu að síður var málið í fjórtán mánuði á borði ráðuneytisins. Ef úrskurðurinn var borðleggjandi líkt og ráðherrann heldur fram, hefði þá ekki verið nær að fella hann miklu fyrr í stað þess að skilja málið eftir í óvissu allan þennan tíma? Getur þetta talist ásættanleg stjórnsýsla?Ráðherrann segir að í þágu „almannahagsmuna" hafi sér ekki verið stætt á öðru en synjun. Eru það almannahagsmunir að setja jafnvel áætlanir um erlenda fjárfestingu og stórframkvæmdir í íslensku atvinnulífi í uppnám? Eru það almannahagsmunir að senda erlendum fjárfestum enn ein skilaboðin um að búast megi við hverju sem er þegar íslensk stjórnsýsla er annars vegar, þrátt fyrir fögur fyrirheit ríkisstjórnar - í svokölluðum stöðugleikasáttmála - um að greiða götu stórframkvæmda?Ráðherran talar um ráðstöfun virkjanakosta „eins og það sé ekki fleiri kynslóða að vænta á Íslandi." Þarna talar ráðherrann um nýtingu vatnsafls með rennslisvirkjunum eins og um námagröft sé að ræða. Ráðherrann virðist ekki skilja eðli endurnýjanlegra orkulinda, þrátt fyrir að aukin nýting þeirra sé efst á baugi í umhverfisumræðunni um veröld alla, í stað brennslu jarðefnaeldsneytis. Rætt hefur verið um að nýta orku þessara rennslisvirkjana til nýrrar orkukrefjandi starfsemi á borð við gagnaver. Slíkir aðilar falast gjarnan eftir samningum um raforkukaup til ca. 15 ára.Vatnsaflsvirkjanir eru almennt taldar hafa endingartíma til eitt hundrað ára eða lengur, og í sjálfu sér er ekkert því til fyrirstöðu að mannvirkin verði endurnýjuð til að endast miklum mun lengur en það. Vatnið rennur áfram, komandi kynslóðir munu áfram njóta teknanna af þessari grænu orku.Loks segir ráðherrann, spurð um afstöðu til virkjana í neðri hluta Þjórsár, að það eigi að fara varlega í nýjar virkjanir, jarðhita og vatnsafls. Er hérna komin raunveruleg ástæða synjunarinnar?"
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Sjá meira