Innlent

Yfirheyrslur enn í gangi

Mynd/Stefán Karlsson

„Það eru yfirheyrslur í gangi og verða áfram," segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, spurður um gang rannsóknar á morðinu sem framið var í Hafnarfirði í síðasta mánuði.

Maður, grunaður um morðið, situr í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni og hefur ekki verið yfirheyrður eftir að hann var fluttur austur. Friðrik Smári segir hann verða tekinn til yfirheyrslu eftir því sem rannsóknin gefi tilefni til.

Lögregla gerir sér vonir um að fyrstu niðurstöður lífsýnarannsókna í Svíþjóð liggi fyrir í lok vikunnar eða byrjun þeirrar næstu.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×