Ríkið auki hagkvæmni innkaupa 10. febrúar 2010 10:49
Ríkisendurskoðun telur að ráðuneytin þurfi að gefa innkaupamálum aukið vægi í starfsemi sinni, setja sér tímasett og mælanleg markmið á þessu sviði og fylgjast með árangri undirstofnana sinna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar um innkaupastefnu ráðuneytanna. Þá er bent á að brýnt sé að innkaup séu merkt sérstaklega í bókhaldi ríkisins eftir innkaupaaðferð til að hægt sé að meta ávinning mismunandi aðferða. Þá þurfi fjármálaráðherra að setja samræmdar reglur um hvenær stofnunum sé heimilt að sneiða hjá rammasamningum. Í skýrslunni er fjármálaráðherra hvattur til að setja samræmdar siðareglur um opinber innkaup sem nái til allra ráðuneyta og stofnana. „Undanfarin ár hafa ráðuneyti og stofnanir í A-hluta ríkissjóðs keypt vörur, þjónustu og verklegar framkvæmdir fyrir um 100 ma.kr. á ári," segir ennfremur. „Að mati Ríkisendurskoðunar er mikilvægt að þessu fé sé varið í samræmi við lög og reglur og á hagkvæman, skilvirkan og árangursríkan hátt. Í nýrri skýrslu stofnunarinnar eru birtar niðurstöður úttektar hennar á innkaupastefnu ráðuneytanna en þau bera mikla ábyrgð við að tryggja að innkaup undirstofnana þeirra séu hagkvæm og í samræmi við þær leikreglur sem stjórnvöld hafa sett." Markmið hafa ekki náðst að fullu Í skýrslunni kemur fram að ekki hafi öll markmið innkaupastefnu ríkisins, sem sett var 2002, náðst og óvíst sé með önnur þar sem trausta mælikvarða á árangur hafi skort. „Er fjármálráðuneytið hvatt til að ráða bót á þessu en það hefur m.a. það hlutverk að fylgjast með árangri innkaupastefnunnar. Þá telur Ríkisendurskoðun að merkja eigi sérstaklega innkaup í bókhaldi ríkisins eftir innkaupaaðferð til að auðvelda ráðuneytum og stofnunum að meta ávinning mismunandi aðferða." Í skýrslunni er fjármálaráðuneytið enn fremur hvatt til þess að kynna innkaupastefnu ríkisins betur fyrir hlutaðeigandi aðilum og gera skýra framkvæmdaáætlun um rafræn innkaup sem unnið hefur verið að því að innleiða hjá ríkinu um nokkurt skeið. Þá er fjármálaráðherra hvattur til að setja samræmdar siðareglur um opinber innkaup sem nái til allra ráðuneyta og stofnana.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Sjá meira