Fjöldi tilkynninga vegna aukaverkana 10. febrúar 2010 06:45 Elsti einstaklingur sem tilkynnt var um að hefði orðið fyrir aukaverkun lyfja í fyrra var 92 ára gamall, en sá yngsti eins árs, samkvæmt nýrri skýrslu Lyfjastofnunar. Mynd/Úr safni
Tilkynningar um aukaverkanir lyfja voru meira en tvöfalt fleiri á árinu 2009 en árið 2008, samkvæmt nýbirtum tölum Lyfjastofnunar. Í fyrra bárust 203 tilkynningar um aukaverkanir en 92 á árinu 2008. Af þeim tilkynningum sem bárust stofnuninni í fyrra voru 46 metnar alvarlegar. „Aukaverkun er talin alvarleg ef hún leiðir til sjúkrahúsvistar, lengingar á sjúkrahúsvist, fötlunar, annars alvarlegs sjúkdómsástands eða dauða,“ segir í skýrslu Lyfjastofnunar. Af þessum alvarlegu aukaverkunum voru tíu vegna fosfatnýrnameins tengt notkun á lyfinu Phosphoral. Phosphoral er hægðalyf notað til að hreinsa þarma fyrir skurðaðgerðir, ristilspeglanir eða röntgenrannsóknir á ristli. Aukaverkanir sem Lyfjastofnun var tilkynnt um á árinu 2009 vegna Phosphoral áttu sér stað á árunum 2005 til 2008. Fjölgun tilkynninga milli ára er fyrst og fremst sögð liggja í því að árið 2009 hafi borist 33 tilkynningar frá lyfjafræðingum, en aðeins sex á árinu 2008 og 34 tilkynningar frá almenningi, en þrjár slíkar hafi borist árið 2008. Flestar tilkynningarnar, 29 talsins, voru vegna Pandemrix, bóluefnis við inflúensu af stofni A(H1N1), svínainflúensu. Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að aukaverkanir vegna bóluefnisins hafi flestar verið vægar, en margir geti fundið fyrir eymslum, vægum hita eða roða eftir flensubólusetningar. Hún áréttar að þótt tilkynningum hafi fjölgað þá þýði það ekki að meira sé um aukaverkanir lyfja. Áður hafi læknar einir tilkynnt um aukaverkanir, en nú hafi bæst við annað heilbrigðisstarfsfólk og almenningur. „Svo er líka fylgst með nýjum lyfjum, sér í lagi fyrstu fimm árin,“ segir Rannveig. Með aðild að Evrópska efnahagssvæðinu segir hún að lyf hafi komið fyrr inn á markaðinn hér en áður þekktist. „Þegar lyf koma á markað þá er búið að rannsaka þau í ákveðnum fjölda sjúklinga, en sjaldgæfar aukaverkanir koma alla jafna ekki í ljós fyrr en þau eru komin í almenna notkun.“ Rannveig segir allar aukaverkanir skráðar hjá Lyfjastofnun Evrópu, en að auki sé starfandi lyfjagátarnefnd sem meti aukaverkanir. Hún segir samstarf mikið á meðal lyfjastofnana í Evrópu og algengt að settar séu inn nýjar viðvaranir, notkun breytt, eða lyf tekin úr sölu. Þannig hafi til dæmis verið brugðist við tilkynningum um nýrnamein af völdum Phosphoral með því að gera lyfið lyfseðilsskylt. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira