Innlent

Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun boðnar út

Mynd/Anton Brink
Landsvirkjun hefur ákveðið að óska eftir tilboðum í nokkra verkhluta vegna upphafsframkvæmda við Búðarhálsvirkjun: vinnu við gröft jarðganga, skurða og vatnsþróar og tilheyrandi styrkingu með sprautusteypu. Takist samningar um orkusölu og fjármögnum virkjunarinnar verða helstu áfangar framkvæmdarinnar boðnir út síðar á þessu ári, að fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Gert er ráð fyrir að unnið verði að undirbúningsverkunum í sumar og í haust og að þeim verði lokið að fullu fyrir 1. desember 2010. Kostnaður við þau er áætlaður á bilinu 600 til800 milljónir króna, að meðtalinni hönnun, verkumsjón og eftirliti.

Útboð vegna upphafsframkvæmdir verður auglýst formlega á morgun, fimmtudag, og tilboð verða opnuð 11. mars 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×