Innlent

Bókasafn Kópavogs fær verk eftir Wilhelm Ernst Beckmann

Börn og bróðurdóttir Wilhelms Ernst Beckmann, tréskurðarlistamanns og fyrsta bæjarlistamanns Kópavogs, færðu í dag Bókasafni Kópavogs að gjöf listaverk, skartgripi, málverk og bækur sem áður voru í eigu listamannsins.  Hrafn Andrés Harðarson bæjarbókavörður tók á móti gjafabréfi úr hendi gefenda við hátíðlega athöfn á bókasafninu í dag, segir í fréttatilkynningu.

Munirnir verða í framtíðinni til sýnis í Beckmannsstofu á 3. hæð bókasafnsins. Hluti þeirra er afhentur strax en það sem eftir er við fráfall gefenda.

Wilhelm Ernst Beckmann fæddist 5. febrúar 1909 í Hamborg en flúði Þýskaland nasismans og kom til Íslands árið 1935. Hann settist hér að og kvæntist  íslenskri konu, Valdísi Einarsdóttur, og átti með henni tvö börn, Einar og Hrefnu.

Wilhelm bjó síðustu æviár sín í Kópavogi og lést 11. maí 1965. Eftir hann eru verk í nokkrum kirkjum landsins og er eitt þeirra , glæsileg altaristafla, í safnaðarheimili Kópavogskirkju.

Wilhelm hóf nám í tréskurði  og höggmyndalist aðeins fjórtán ára gamall hjá kunnum þýskum meistara í Hamborg, Karl Olde. Seinna stundaði hann nám við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Fyrstu árin sín á Íslandi vann hann m.a. á verkstæði Ríkarðs Jónssonar myndskera en setti svo upp sína eigin vinnustofu á Laugavegi 100. Hann vann þar að tréskurði og bjó til listmuni til tækifærisgjafa.

Dóttir hans Hrefna býr á Íslandi en sonur hans Einar hefur búið í Ástralíu í fjörutíu ár. Þau ásamt bróðurdótturinni,  Moiken Steinberg, eru hér á landi til að veita Bókasafni Kópavogs gjöfina til minningar um listamanninn.

Við athöfnina í dag voru einnig viðstödd Guðrún Pálsdóttir bæjarstjóri, Hafsteinn Karlsson, formaður lista- og menningarráðs, Sigurður Arnarson, sóknarprestur í Kársnesprestakalli, Kathrin Gegner frá þýska sendiráðinu og fleiri góðir gestir.

Boðið var upp á kaffi og kleinur en eftir það fór hópurinn í safnaðarheimili Kópavogskirkju og skoðaði altaristöfluna sem listamaðurinn gaf söfnuðinum við vígslu kirkjunnar árið 1964.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×