Skýrslan ekki dauðadómur yfir Samfylkingunni 5. desember 2010 17:24 Sigríður Ingibjörg Ingadóttir. „
Mér finnst þessi skýrsla sýna styrkleika flokksins sem er tilbúinn til að fara með opinskáum hætti yfir þennan vanda sem flokkurinn hefur verið að takast á við," segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Skýrsla umbótanefndar flokksins sé ekki dauðadómur yfir honum. Flokksstjórn Samfylkingarinnar fundaði í gær um skýrslu umbótanefndar flokksins en nefndinni var gert að fara yfir starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. Nefndin gagnrýnir flokksforystuna harðlega og segir að hún sé engum tengslum við grasrót flokksins. Varaformaður Samfylkingarinnar sagði í samtali við fréttastofu í dag að skýrslan væri áfellisdómur yfir starfsháttum flokksins. Sigríður var gestur í þætti Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni fyrr í dag. Sigurjón spurði hana út í skýrslu umbótanefndarinnar og hvort niðurstaðan væri ekki dauðadómur yfir Samfylkingunni. Sigríður sagði að í skýrslunni væri vissulega fast kveðið að orði. Eftir rannsóknarskýrslu Alþingis væri ljóst að stundum þurfi að segja hlutina eins og þeir væri. „Um hvað er rætt í dag? Að stjórnarmálaflokkarnir njóti ekki traust. Að Alþingi njóti ekki trausts. Hvernig byggir þú upp það traust? Með því að búa til skýrslu sem talar ekki um hlutina eins og þeir eru? Nei," sagði Sigríður.
Tengdar fréttir „Við vorum ekki fórnarlömb óheillaþróunar“ Andvaraleysi og afneitun einkenndi afstöðu Samfylkingarinnar í ríkisstjórnarsamstarfinu með sjálfstæðismönnum að mati umbótanefndar flokksins. Samfylkingin bað íslensku þjóðina afsökunar í dag á mistökum sem flokkurinn gerði í aðdraganda hrunsins. 4. desember 2010 18:42 Tillaga um afsökunarbeiðni samþykkt Flokksstjórn Samfylkingarinnar samþykkti á fundi sínum í dag ályktun þar sem Samfylkingin biður íslensku þjóðina afsökunar á þeim mistökum sem hún ber ábyrgð á í aðdraganda hrunsins. Jafnframt heitir Samfylkingin því að hlusta með opnum hug á gagnrýni og takast á við umbætur á skipulagi, starfsháttum og stefnu flokksins til að koma í veg fyrir að sambærileg mistök endurtaki sig. 4. desember 2010 16:41 Ingibjörg Sólrún á meðal fundarmanna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, var meðal fundargesta á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fer fram á Hótel Loftleiðum í dag. Megin umfjöllunarefni fundarins eru tillögur umbótanefndar flokksins en nefndin var skipuð í aprílmánuði til að fara yfir starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. Ingibjörg tók ekki til máls á fundinum en hún hefur nú yfirgefið samkunduna. 4. desember 2010 15:54 Stjórnarþátttakan afhjúpar veikleika flokksins Umbótanefnd Samfylkingarinnar kemst að þeirri megin niðurstöðu í skýrslu sem lögð er fyrir flokksstjórn í dag að bankahrunið og ríkisstjórnarþátttaka flokksins afhjúpi veikleika í flokksstarfinu. Varaformaður flokksins segir að ábyrgðin á bankahruninu megi ekki einskorðast við þá einstaklinga sem stóðu í eldlínunni á tíma hrunsins. 4. desember 2010 12:12 Samfylkingin biðji þjóðina afsökunar Samfylkingin biður þjóðina afsökunar á þeim mistökum sem hún beri ábyrgð á í aðdraganda hrunsins. Jafnfram heitir flokkurinn því að hlusta með opnum huga á gagnrýni og takast á við umbætur á skipulagi, starfsháttum og stefnu flokksins til að koma í veg fyrir að sambærileg mistök endurtaki sig. Þetta kemur fram í ályktun sem liggur fyrir flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fram fer á hótel Loftleiðum í dag og verður væntanlega samþykkt síðdegis. 4. desember 2010 15:07 Stjórnmálaflokkum verði bannað að auglýsa í sjónvarpi Samfylkingin hefur brennt sig illa á því að sækjast eftir og þiggja fé af einstökum fyrirtækjum og fjársterkum hagsmunaaðilum. Það er ljóst að flokkurinn hefur gert afdrifarík og alvarleg mistök með því að láta viðgangast að frambjóðendur öfluðu fjár frá fyrirtækjum, og jafnvel hvetja til þess. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar og lögð var fyrir flokksstjórn Samfylkingarinnar fyrr í dag. Nefndin leggur til að flokkurinn beiti sér fyrir því að sjónvarps- og útvarpsauglýsingar stjórnmálaflokka verði bannaðar í aðdraganda kosninga. 4. desember 2010 13:39 Ráðherrar sagðir í engum tengslum við flokkinn „Starf ráðherra er í litlum eða engum tengslum við flokkinn. Ráðherrar Samfylkingarinnar hafa engar skyldur um að standa skil á embættisfærslum sínum gagnvart eigin félögum og flokksmenn hafa engar formlegar leiðir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra flokksins,“ segir í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar sem lögð var fyrir flokksstjórn flokksins í hádeginu. 4. desember 2010 13:16 Mest lesið Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Innlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Fleiri fréttir Notust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Sjá meira
„Við vorum ekki fórnarlömb óheillaþróunar“ Andvaraleysi og afneitun einkenndi afstöðu Samfylkingarinnar í ríkisstjórnarsamstarfinu með sjálfstæðismönnum að mati umbótanefndar flokksins. Samfylkingin bað íslensku þjóðina afsökunar í dag á mistökum sem flokkurinn gerði í aðdraganda hrunsins. 4. desember 2010 18:42
Tillaga um afsökunarbeiðni samþykkt Flokksstjórn Samfylkingarinnar samþykkti á fundi sínum í dag ályktun þar sem Samfylkingin biður íslensku þjóðina afsökunar á þeim mistökum sem hún ber ábyrgð á í aðdraganda hrunsins. Jafnframt heitir Samfylkingin því að hlusta með opnum hug á gagnrýni og takast á við umbætur á skipulagi, starfsháttum og stefnu flokksins til að koma í veg fyrir að sambærileg mistök endurtaki sig. 4. desember 2010 16:41
Ingibjörg Sólrún á meðal fundarmanna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, var meðal fundargesta á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fer fram á Hótel Loftleiðum í dag. Megin umfjöllunarefni fundarins eru tillögur umbótanefndar flokksins en nefndin var skipuð í aprílmánuði til að fara yfir starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. Ingibjörg tók ekki til máls á fundinum en hún hefur nú yfirgefið samkunduna. 4. desember 2010 15:54
Stjórnarþátttakan afhjúpar veikleika flokksins Umbótanefnd Samfylkingarinnar kemst að þeirri megin niðurstöðu í skýrslu sem lögð er fyrir flokksstjórn í dag að bankahrunið og ríkisstjórnarþátttaka flokksins afhjúpi veikleika í flokksstarfinu. Varaformaður flokksins segir að ábyrgðin á bankahruninu megi ekki einskorðast við þá einstaklinga sem stóðu í eldlínunni á tíma hrunsins. 4. desember 2010 12:12
Samfylkingin biðji þjóðina afsökunar Samfylkingin biður þjóðina afsökunar á þeim mistökum sem hún beri ábyrgð á í aðdraganda hrunsins. Jafnfram heitir flokkurinn því að hlusta með opnum huga á gagnrýni og takast á við umbætur á skipulagi, starfsháttum og stefnu flokksins til að koma í veg fyrir að sambærileg mistök endurtaki sig. Þetta kemur fram í ályktun sem liggur fyrir flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fram fer á hótel Loftleiðum í dag og verður væntanlega samþykkt síðdegis. 4. desember 2010 15:07
Stjórnmálaflokkum verði bannað að auglýsa í sjónvarpi Samfylkingin hefur brennt sig illa á því að sækjast eftir og þiggja fé af einstökum fyrirtækjum og fjársterkum hagsmunaaðilum. Það er ljóst að flokkurinn hefur gert afdrifarík og alvarleg mistök með því að láta viðgangast að frambjóðendur öfluðu fjár frá fyrirtækjum, og jafnvel hvetja til þess. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar og lögð var fyrir flokksstjórn Samfylkingarinnar fyrr í dag. Nefndin leggur til að flokkurinn beiti sér fyrir því að sjónvarps- og útvarpsauglýsingar stjórnmálaflokka verði bannaðar í aðdraganda kosninga. 4. desember 2010 13:39
Ráðherrar sagðir í engum tengslum við flokkinn „Starf ráðherra er í litlum eða engum tengslum við flokkinn. Ráðherrar Samfylkingarinnar hafa engar skyldur um að standa skil á embættisfærslum sínum gagnvart eigin félögum og flokksmenn hafa engar formlegar leiðir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra flokksins,“ segir í skýrslu umbótanefndar Samfylkingarinnar sem lögð var fyrir flokksstjórn flokksins í hádeginu. 4. desember 2010 13:16