Fyrrverandi ráðherra íhugaði framboð til stjórnlagaþings 17. október 2010 11:41 Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra og þingmaður. Mynd/GVA
Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Alþýðubandalagsins, íhugaði að gefa kost sér til stjórnlagaþings. Framboðsfrestur rennur út á mánudag og hefur framboðum rignt inn síðustu daga og hafa yfir 130 skráð sig til leiks. Ragnar og Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, voru gestir í þætti Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í morgun þar sem fjallað var um stjórnarskránna um stjórnlagaþingið. Ragnar sagði að fjölmargir hafi skorað á sig að gefa kost sér en hann hafi að lokum ákveðið að gera það ekki. Yngri kynslóðin eigi að fjalla um þessi mál. „Þær eru fjölmennar og þær eru að koma nýjar að borðinu. Það er mín persónulega skoðun, en ég er ekki á móti því að aðrir á mínum aldri bjóði sig fram."Fyrrverandi ráðherrar óvelkomnir Þorsteinn sagðist aftur á móti ekki hafa íhugað að sækjast eftir sæti á stjórnlagaþinginu. „Fyrst og fremst vegna þess að Alþingi tók ákvörðun um það stjórnmálmenn ættu ekki að sitja á stjórnlagaþinginu. Þó það sé í lögunum afmarkað við þá sem sitja á Alþingi þá fannst mér það nú leiða af sjálfu sér að fyrrverandi þingmenn og ráðherrar til margra ára væru ekki velkomnir. Þannig að það kom aldrei til álita að minni hálfu."Frambjóðendur til stjórnlagaþings Framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út á morgun. Samkvæmt óopinberum lista yfir frambjóðendur á Wikipedia hafa meira en 130 gefið kost á sér. Kosningar til stjórnlagaþings verða haldnar þann 27. nóvember næstkomandi en hver og einn kjörgengur Íslendingur mun geta kosið 25 frambjóðendur og raðað þeim í forgangsröð. Miðað er við að 25 manns muni skipa þingið en þeim getur fjölgað ef leiðrétta þarf vegna kynjasjónarmiða. Heimild er þá til þess að fjölga fulltrúum um allt að 6, í því skyni að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%. Ráðgefandi stjórnlagaþing mun síðan koma saman í síðasta lagi þann 15. febrúar á næsta ári til þess að endurskoða stjórnarskrá Íslands.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira