Hefur verulegar áhyggjur af stöðu Íbúðalánasjóðs 17. október 2010 12:11 Jóhanna Sigurðardóttir. Mynd/Valli
Lántakendur hjá Íbúðalánasjóði sem eru í greiðsluerfiðleikum geta breytt láni sínu í kaupleigusamning samkvæmt frumvarpi sem ríkisstjórnin afgreiddi á föstudag. Forsætisráðherra hefur verulegar áhyggjur af stöðu sjóðsins. Sérfræðingahópur ríkisstjórnarinnar undir forsæti Sigurðar Snævarr, hagfræðings og efnahagsráðgjafa forsætisráðherra, hefur um helgina verið að reikna út afleiðingar þeirra tillagna sem liggja fyrir um aðstoð við skuldsett heimili. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði fyrir helgi að átta til níu tillögur væru til skoðunar, en líklega væri almenn niðurfærsla skulda ekki inn í myndinni vegna andstöðu fjármálastofnanna og fleiri við þá leið. Hún segir mikilvægt að allir aðilar sem málið snertir komi að lausn vandans, þar með Íbúðalánasjóður þar sem langflestir eru með sín íbúðarlán. „Ég verð þó að viðurkenna að ég hef áhyggjur af Íbúðalánasjóði. Þar eru veruleg vanskil og sjóðurinn stendur ekki vel. Ef það á að að leggja miklar byrðar á hann þá þurfum við að sjá hvernig við fjármögnum það og það sé gert með þeim hætti að við séum ekki að stefna efnahags- eða fjármálastöðugleikanum í einhverja hættu," segir Jóhanna. Endurskipulagning mun taka tíma Íbúðalánasjóður hefur eins og bankarnir leyst til sín fjölda íbúða eftir hrunið, en sjóðurinn getur samkvæmt lögum ekki leigt út íbúðir eins og bankarnir. Guðbjartur Hannesson félagsmálaráðherra lagði fram frumvarp í ríkisstjórn á föstudag sem ætlað er að koma til móts við lántakendur hjá sjóðnum. Lántakendur í greiðsluerfiðleikum geta breytt láni sínu í kaupleigusamning. Guðbjartur segir hins vegar liggja fyrir endurskipulagning á öllu húsnæðiskerfinu, en það muni taka lengri tíma. Sérfræðingahópur ríkisstjórnarinnar fundar seinnipartinn í dag og býst forsætisráðherra við að hann skili fyrstu niðurstöðum sínum upp úr miðri vikunni.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira