Innlent

Ellefu gistu fangageymslur í Reykjavík

Nóttin var heldur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt þó voru ellefu sem gistu fangageymslur flestir vegna ölvunar. Eitthvað var um minniháttar pústra í miðborginni og einn gisti fangageymslur vegna líkamsárásar.

Lögreglan hafði afskipti af tveimur mönnum sem voru búnir að brjótast inn í skemmtigarð í Gufunesi. Þeim hafði tekist að taka talsvert af varningi og voru þeir handteknir á staðnum. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra voru mennirnir í annarlegu ástandi.

Þá voru tveir teknir grunaðir um ölvun við akstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×