Innlent

ÍTR og Vinnumálastofnun taka höndum saman

Vinnumálastofnun.
Vinnumálastofnun.

Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur og Vinnumálastofnun hafa tekið höndum saman um að bjóða ungum atvinnuleitendum að taka þátt í virkni-verkefnum sem starfrækt verða af ÍTR samkvæmt tilkynningu frá ÍTR.

Undir merkjum átaksins „Ungs fólks til athafna" mun ÍTR nú bjóða upp á virkninámskeið sem byggja á fræðslu og vinnustaðanámi í íþrótta- og æskulýðsgeiranum, fyrir aldurshópinn 18-29 ára.

ÍTR-Torgið er sá heildræni vettvangur sem tekur á móti atvinnuleitendum í verkefnið, heldur utan um þá meðan á verkefninu stendur og útskrifar þátttakendurna að 8 vikum liðnum. Áhugasamir sækja um hjá ráðgjöfum „Ungs fólks til athafna".

1. Virkni-verkefnið hefst á vikulöngu námskeiði á ÍTR-Torginu. Þar er fjallað um vinnustaðanám, smiðjur, hópefli og unnið með reynslu og þarfir þátttakenda.

2. Síðan tekur við 6 vikna vinnustaðanám á starfstöðum ÍTR. Einnig verður boðið upp áhugaverðar kynningar, fræðslu og smánámskeið á Torginu.

3. Verkefninu lýkur með vikulöngu námskeiði á ÍTR-Torginu. Hópurinn deilir reynslu af vinnustaðanáminu, fær kynningar á virkni-úrræðum sem í boði eru og horft verður til framtíðar.

Virkni-verkefnið „ÍTR-Torgið" stendur í átta vikur og er samtals 200 stundir.

Þátttakendum bjóðast 6 leiðir í vinnustaðanámi; 3 í almennri starfsemi ÍTR með börnum, unglingum og á sundstöðum, og 3 leiðir í vinnustofum eða smiðjum.

ÍTR-Torgið tekur á móti tveimur hópum á þessu ári og hefjast verkefnin

4. október og 1. nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×