Íslenskar konur taka niður fyrir sig á vinnumarkaði 7. september 2010 09:15 Konur, frekar en karlar, eru í störfum sem krefjast minni menntunar en þær hafa Mynd: Vilhelm Gunnarsson
Á Íslandi eru konur mun líklegri en karlar til að vera í starfi sem krefst minni menntunar en þær hafa lokið. Árið 2007 voru 21% 25-29 ára íslenskra kvenna en 11% karla sem höfðu lokið háskólamenntun í störfum sem ekki krefjast háskólamenntunar, til dæmis í skrifstofustörfum eða þjónustustörfum. Meðaltal OECD ríkja er 23% fyrir karla og 22% fyrir konur. Þá sinntu 6% kvenna og 3% karla sem höfðu lokið framhaldsskólastigi störfum sem ekki krefjast neinnar sérhæfingar en þar er meðaltal OECD ríkja 7% bæði fyrir karla og konur. Þetta kemur fram í ritinu „Education at a Glance 2010, OECD Indicators", sem Efnahags- og framfarastofnunin OECD hefur gefið út. Greint er frá efni skýrslunnar á vef Hagstofunnar. Útgjöld Íslendinga til menntastofnana námu 7,8% af vergri landsframleiðslu árið 2007 og var Ísland í efsta sæti meðal OECD ríkja hvað þessi útgjöld varðar. Vegið meðaltal OECD ríkja var 6,2% og meðaltal ríkjanna var 5,7%. Útgjöld til menntastofnana sem hlutfall af þjóðarframleiðslu á Íslandi lækkuðu um 0,2% frá árinu 2006. Á Íslandi var 17,4% útgjalda hins opinbera varið til menntamála árið 2007 en að meðaltali vörðu OECD ríkin 13,3% útgjalda hins opinbera til menntamála. Menntun er fjárhagslega hagkvæm, bæði fyrir einstaklinga og samfélagið. Opinber framlög til menntunar skila sér til baka í hærri skatttekjum. Þar við bætast jákvæð áhrif menntunar á þjóðfélagið sem ekki mælast í auknum skatttekjum. Íslenskir háskólanemendur eru eldri en nemar í öðrum OECD löndum þegar þeir hefja háskólanám. Helmingur nýnema í fræðilegu háskólanámi í íslenskum háskólum er eldri en 23,2 ára, en 20,4 ára að meðaltali í aðildarlöndum OECD. Nettó útskriftarhlutfall í fræðilegu háskólanámi á Íslandi er 57% en 35% þegar aðeins er litið til nemenda undir 30 ára aldri. Hlutfallið er 37% fyrir karla og 78% fyrir konur. Meðaltal OECD ríkja er 38% fyrir alla nemendur. Hvergi í OECD ríkjunum er meiri munur á útskriftarhlutfalli karla og kvenna í fræðilegu námi á háskólastigi. Þessi fjöldi eldri nemenda á framhaldsskólastigi og háskólastigi á Íslandi bendir til þess að skólakerfið á Íslandi sé opið og að auðvelt sé að taka aftur upp þráðinn í námi fyrir nemendur sem ekki hafi lokið námi á hefðbundnum aldri.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira