Óli Björn: Eins og að pissa í skóinn sinn 7. september 2010 12:21
Þátttaka lífeyrissjóða í samkeppnisrekstri er eins og að pissa í skóinn sinn að sögn Óla Björns Kárasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Í dag fór fram umræða utan dagskrár um þátttöku lífeyrissjóðanna í atvinnulífinu. Óli Björn var málshefjandi og til andsvara var Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Óli Björn gagnrýndi harðlega kaup Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna á eignarhaldsfélagi Landsbankans, Vestia, og fyrirtækjum sem eru í eigu Vestia. Það er augljóst að við söluna gekk bankinn þvert á eigin starfsreglur um gegnsæi og opið ferli við sölu fyrirtækja. Að hans mati er auk þess varhugavert og ámælisvert að lífeyrissjóðirnir eignist fjölda fyrirtækja að fullu. „Þetta á ekki síst við ef um er að ræða fyrirtæki í samkeppnisrekstri," segir Óli Björn og bendir á að slíkt muni skekkja samkeppnisstöðu og iðgjöld starfsmanna fyrirtækja í samkeppni við fyrirtæki í eigu Framtakssjóðsins nýtt til að efla keppinautana. Óli Björn benti á að margir lífeyrsisjóðir hafi þurft að skerða lífeyrisréttindi sjóðsfélaga sinna. Nú vilji stjórnendur sömu sjóða ávaxta fé í áhættusömum samkeppnisrekstri. „Þetta er líkt og að pissa í skóinn, manni hitnar í smá stund en síðan kemur ofkælingin," sagði Óli Björn Kárason. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra tók þá til máls og benti meðal annars á að Framtakssjóðnum hafi verið settar skýrar reglur og að honum sé beinlínis ætlað að taka þátt í endurreisn íslensks atvinnulífs. Auk þess benti fjármálaráðherra á að lífeyrissjóðunum sé ekki ætlað að verða framtíðareigendur umræddra fyrirtækja. Framtakssjóðnum sé ætlað að starfa í tíu ár og hefja sölu á fyrirtækjum strax að þremur árum liðnum eða svo. Hvað varðar söluna á Vestia út úr Landsbankanum vísaði Steingrímur á bankasýslu ríkisins. Það væri hennar að hafa eftirlit með því hvort bankarnir starfi samkvæmt verklagsreglum. „Mér er lögum samkvæmt bannað að skipta mér af því," sagið Steingrímur.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Sjá meira