Hlátrasköll á Alþingi: „Hvar hefur þú verið?“ Erla Hlynsdóttir skrifar 7. september 2010 12:00 Össur Skarphéðinsson er gjarnan snöggur til svars og lét ljós sitt skína á Alþingi í morgun Mynd: Anton Brink
Líf og fjör var á Alþingi í morgun þar sem umræður um störf þingsins voru á dagskrá. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði því skóna að stokkað hefði verið upp í ríkisstjórninni til þess eins að þingmeirihluti fengist fyrir fjárlögum, og vísaði í því sambandi til orða Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, á tröppum Bessastaða þegar ný ríkisstjórn var kynnt. Sem kunnugt er var Álfheiði skipt út fyrir Ögmund Jónasson sem kenndur hefur verið við „órólegu deildina" í vinstri grænum. „Hún sagði, með leyfi forseta, að með ráðherraskiptunum væri verið að tryggja meirhluta fyrir fjárlögum. Nú held ég að flestir hafi staðið í þeirri meiningu að hér væri meirihlutastjórn í landinu," sagði Guðlaugur. Þá heyrðist úr þingsalnum að einhver hrópaði: „Hvar hefur þú verið?" og í kjölfarið glumdu hlátrasköll þannig að þingmaður þurfti að gera stutt hlé á máli sínu. Af orðum Guðlaugs því næst mátti ráða að þarna hafi kallað fram Össur Skarphéðinssn utanríkisráðherra og „yfirforsætisráðherra" eins og Guðlaugur nefndi hann. Guðlaugur vildi meina að með framíkalli sínu hafi utanríkisráðherra gefið í skyn að hér hafi einmitt ekki verið meirihlutastjórn. Össur kom skömmu síðar sjálfur í pontu og uppskar enn meiri hlátur þegar hann sagði snögglega: „Ég hef fulla trú á að Ögmundur Jónasson, hæstvirtur ráðherra, hann styrki ríkisstjórnina og jafnvel læt mér koma til hugar að ríkisstjórnin hugsanlega hafi þá meirihluta fyrir fjárlögunum."
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira