Innlent

Margfalt meira svifryk á Akureyri en í Reykjavík

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Svifrykið fór upp í 350 míkrógrömm á rúmmetra í Reykjavík og þótti flestum nóg um.
Svifrykið fór upp í 350 míkrógrömm á rúmmetra í Reykjavík og þótti flestum nóg um.
Svifrykið á Akureyri var næstum þrefalt meira en í Reykjavík í dag. Á Akureyri hefur svifrykið mælst allt upp undir 900 míkrógrömm á rúmmetra í dag en í Reykjavík hefur það mælst 350 míkrógrömm á rúmmetra, samkvæmt mælingum sem birtar eru á vefsíðum sveitarfélaganna tveggja.

Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík sá ástæðu til að senda frá sér viðvörun í dag þegar ljóst var að aska frá Eyjafjallajökli væri að berast í miklu magni yfir höfuðborgarsvæðið. Það er kannski ekki að furða því að heilsuverndarmörk svifryks eru 50 míkrómetrar á sekúndu. Svifryksmagnið í Reykjavík var því sjö sinnum yfir heilsuverndarmörkum og svifryksmagnið á Akureyri var 18 sinnum yfir heilsuverndarmörkum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×