Innlent

Leigja landspildur undir gæsaveiðar

Vaxandi áhugi er meðal þéttbýlismanna á að taka á leigu landspildur til að stunda gæsaveiðar, en verulega dró úr henni fyrst eftir hrun.

Veiðitíminn hófst nú um mánaðamótin og hefur talsvert borið á auglýsingum eftir slíkum svæðum, einkum í Bændablaðinu.

Samkvæmt upplýsingum Fréttastofunnar eru Þó töluvert lægri upphæðir í boði en voru á útrásarárunum. Umhverfisstofnun gefur út veiðileyfin og hvetur hún veiðimenn til að ganga vel um þessa auðlind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×