Forsetinn á ferð í Kína 7. september 2010 09:58
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson er nú á ferð í Kína í tilefni af þjóðardegi Íslands og íslenskri dagskrá á Heimssýningunni í Shanghai. Hann mun einnig eiga fundi með kínverskum ráðamönnum og sérfræðingum ásamt því að taka þátt í tveimur alþjóðlegum þingum. „Í morgun átti forseti Íslands árangursríkan fund með varaforseta Kína Xi Jinping en hann er ásamt Hu Jintao forseta og Wen Jiabao forsætisráðherra einn þriggja helstu ráðamanna Kína," segir í tilkynningu frá forsetaembættinu. „Fundurinn fór fram í Xiamen þar sem forseti Íslands og varaforseti Kína fluttu setningarræður á alþjóðaþingi sem Viðskipta- og þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNCTAD, heldur í Kína. Ræðunum var sjónvarpað beint í ríkissjónvarpi Kína." Afdráttarlaus vilji til að efla samvinnu ríkjanna Kínverski varaforsetinn lét í ljós afdráttarlausan vilja kínverskra yfirvalda til að efla samvinnu við Ísland, einkum á sviði jarðhitanýtingar og hreinnar orku, sem og rannsókna á jarðskjálftum og jöklum. „Varaforsetinn lýsti því yfir að samvinna í jarðhitaverkefnum yrði burðarás í samstarfi við Ísland á komandi árum og mikilvægt væri að íslenskir aðilar tækju þátt í að efla jarðhitanýtingu innan margra svæða og borga í Kína. Bent var á að kínverskir stúdentar gætu sótt nám í orkuskólunum sem nýlega voru stofnsettir í tengslum við íslenska háskóla. Þess má geta að kínversk stjórnvöld hafa nýlega ákveðið að verja sem svarar 735 milljörðum Bandaríkjadala á næstu tíu árum til framkvæmda á sviði hreinnar orku." Þá kom fram mikilvægi þess að minnast þess með myndarlegum hætti á næsta ári að þá verða 40 ár liðin frá því að tekið var upp stjórnmálasamband milli ríkjanna. „Forseti Íslands þakkaði vinsemd í garð Íslands sem fram hefði komið í þeim samningum við Seðlabanka Íslands og um orkumál sem undirritaðir voru þegar einn af leiðtogum Kína He Guoqiang heimsótti Ísland nýlega. Í kvöld situr forseti svo hátíðarmálsverð í boði varaforseta Kína, Xi Jinping." Fundaði um jarðhitanýtingu í Innri Mongólíu Ólafur Ragnar hefur einnig átt fundi um nýtingu jarðhita í Innri Mongólíu og fylkinu Yunnan en á báðum stöðunum er ríkulegur áhugi á samvinnu við Íslendinga vegna þeirrar reynslu og tæknikunnáttu sem þjóðin býr yfir. Þá heimsótti forseti jöklarannsóknastofnunina í Lijiang en þar hafa farið fram ítarlegar rannsóknir á Yulong jöklunum sem eru á undanhaldi. Einnig sat forseti fróðlegan kynningarfund í Kínversku jarðskjálftamiðstöðinni í Kunming þar sem lýst var víðtækum rannsóknum á jarðskjálftum, tjóni í borgum og bæjum og áhrifum þeirra á byggingar og mannvirki, sem og hvernig hjálparstarf hefði verið skipulagt. Eins og kunnugt er hafa hrikalegir jarðskjálftar orðið í Kína á undanförnum misserum og meta kínversk stjórnvöld mikils þá aðstoð sem Íslendingar hafa veitt. Á morgun flytur forseti ræðu á sérstökum fundi á þinginu þar sem fjallað verður um ábyrga þróun í fjármálaviðskiptum ríkja og lærdómana sem draga má af reynslu undanfarinna missera. Síðdegis á morgun heldur forseti svo til Shanghai þar sem hann tekur þátt í þjóðardegi Íslands og fjölþættri annarri dagskrá sem helguð er Íslandi, meðal annars ráðstefnu um nýtingu hreinnar orku og samvinnu Íslands og Kína á því sviði. Fjölmargir íslenskir aðilar taka þátt í henni.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira