Innlent

Ferð Herjólfs frestað: Staðan metin klukkan þrjú

Erla Hlynsdóttir skrifar
Herjólfur er nú í Vestmannaeyjum.
Herjólfur er nú í Vestmannaeyjum. Mynd: Arnþór

Herjólfur siglir ekki frá Vestmannaeyjum klukkan hálf þrjú eins og áætlað var. Staðan verður metin að nýju klukkan þrjú og þá tekin ákvörðun um hvort siglt verður klukkan hálf sex.

Stefnt var að því að Herjólfur myndi frá og með deginum í dag sigla eftir sjávarföllunum og gerði Siglingastofnun áætlun með tilliti til flóðs og fjöru.

Herjólfur stendur nú við Vestmannaeyjahöfn en vindur við Stórhöfða nær nú allt að tuttugu metrum á sekúntu.

Ef ekki verður hægt að sigla klukkan hálf sex verður ekki siglt fyrr en í fyrramálið, sé miðað við áætlun Siglingastofnunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×