Innlent

Ferð Herjólfs frestað vegna veðurs

MYND/Arnþór

Fyrsta ferð Herjólfs frá Eyjum til Landeyjahafnar, sem fara átti klukkan sex í morgun var frestað, en nú vegna veðurs.

Þriggja metra ölduhæð er utan við höfnina og vindhviður á Stórhöfða fara allt upp í 29 metar á sekúndu.

Eftir dýptarmælingar í höfninni í gær gaf Vegagerðin út nýja áætlun fyrir skipið miðað við að það sé aldrei á fjöru í Landeyjahöfn, sem er orðin of grunn fyrir Herjólf við þær aðstæður.

Nú grípur veðrið inn í og horfur eru slæmar á frekari siglingum fam eftir degi, að minnstakosti






Fleiri fréttir

Sjá meira


×