Allsherjarnefnd vill láta samþykkja frumvarp um fórnarlömb mansals Erla Hlynsdóttir skrifar 7. september 2010 09:45 Samtökin Amnesty International hafa lengi barist gegn mansali. Þessi mynd er úr baráttuherferð þeirra. Mynd: AFP
Allsherjarnefnd Alþingis leggur til að frumvarp um dvalarleyfi fyrir fórnarlömb mansals verði samþykkt. Þær einu breytingar sem nefndin gerir á frumvarpinu er að í stað þess að dvalarleyfi verði allt frá þrjátíu dögum og upp í sex mánuði þá sé tekið fram að dvalarleyfið sé til fullra sex mánaða. „Nefndin telur frumvarpið mikilvægt framlag til þeirrar alþjóðlegu baráttu sem nauðsynleg er gegn mansali. Í því felast verulegar réttarbætur fyrir fórnarlömb mansals og grundvallast þær á mannréttindum og mannúðarsjónarmiðum," segir í nefndarálitinu. Með frumvarpinu er lagt til að ákvæðum laganna um dvalarleyfi verði breytt þannig að við bætist tveir nýir flokkar dvalarleyfa til handa fórnarlömbum mansals, það er skylda til að veita dvalarleyfi í allt að sex mánuði ef fyrir er hendi grunur um að viðkomandi sé fórnarlamb mansals og heimild til að veita endurnýjanlegt dvalarleyfi til eins árs. Þessi leyfi verði veitt þótt grunnskilyrðum um veitingu dvalarleyfa sé ekki fullnægt. Tilefni frumvarpsins er fyrirhuguð fullgilding samnings Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali og svokallaðrar Palermó-bókunar. Enginn fulltrúi nefndarinnar var mótfallinn afgreiðslu frumvarpsins. Þau sem skrifa undir þá tillögu að frumvarpið verði samþykkt með fyrrgreindri breytingu eru Róbert Marshall, Ögmundur Jónasson, Mörður Árnason, Birgir Ármannsson, Ólöf Nordal, Vigdís Hauksdóttir og Þráinn Bertelsson. Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru Árni Þór Sigurðsson og Valgerður Bjarnadóttir. Þór Saari, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur álitinu. Nefndin fjallaði á fundum sínum um þær tvær tegundir dvalarleyfa sem lagðar eru til í frumvarpinu og tekur fram að fyrra úrræðið felur í sér skyldu Útlendingastofnunar til að veita dvalarleyfi útlendingi sem grunur leikur á að sé fórnarlamb mansals. Nefndin tekur fram að ákvæðið er óvenjulegt að því leyti að ákvæðin í lögunum um veitingu dvalarleyfis eru heimildarákvæði en þetta felur í sér skyldu. Nefndin fjallaði sérstaklega um tímamörk þessa dvalarleyfis. Lagt er til að Útlendingastofnun skuli í þessum tilvikum veita dvalarleyfi í allt að sex mánuði en þó ekki skemur en þrjátíu daga. Fyrir nefndinni var þeim sjónarmiðum hreyft að í ákvæðinu, sem mælir fyrir um skyldu til útgáfu dvalarleyfis, væru of rúm tímamörk, það er frá þrjátíu dögum upp í allt að sex mánuði, og að viðkomandi þurfi hæfilegan afturbata og umþóttunartíma að lágmarki. Nefndin tekur undir þau sjónarmið og leggur áherslu á að ákvæðið þarf að túlka í samræmi við ákvæði annarrar málsgreinar frumvarpsins sem kveður á um að ef fyrir hendi er rökstuddur grunur um að gert sé tilkall til stöðu fórnarlambs í þeim tilgangi einum að afla dvalarleyfis, og ekki er sýnt fram á annað með óyggjandi hætti, veitir það ekki rétt til dvalarleyfis. Nefndin leggur því til breytingu á frumvarpinu þannig að tímamörkin verði miðuð við sex mánuði
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira