Innlent

Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórn fiskveiða

Fiskur. Mynd úr safni.
Fiskur. Mynd úr safni.

Ekki ríkti einhugur um skýrsluna sem starfshópur um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða gerði og var meðal annars rædd á ríkisstjórnarfundi í dag.

Samtök fiskiframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) skora á stjórnvöld að leggja þær leiðir sem helst var rætt um í nefndinni, tilboðsleiðina og samningaleiðina, í þjóðaratkvæðagreiðslu til að ná sátt við þjóðina, eiganda auðlindarinnar.

LÍU vill hinsvegar fara samningaleiðina samkvæmt yfirlýsingu sem finna má á vefsíðu sambandsins.

Í tilkynningu frá SFÚ segir að ef skýrslan er lesin megi sjá að ekki ríkti einhugur um þau atriði sem um var fjallað og ýmis sjónarmið voru uppi. Í bókunum SFÚ við skýrsluna kemur eftirfarandi fram:

„SFÚ lýsti þar yfir fullum stuðningi við tilboðsleiðina sem Þorkell Helgason og Jón Steinsson kynntu.

SFÚ lagði til að enn frekari athuganir yrðu gerðar á þjóðhagslegum áhrifum beggja leiða.

SFÚ ásamt öðrum hagsmunaaðilum lagði til að allur óunninn afli verði seldur á markaði eða markaðsverð á innlendum fiskmörkuðum verði látið ráða í beinum viðskiptum.

Sömu aðilar lögðu til að í lög verði sett ákvæði um fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu þar sem óheimilt yrði, út frá samkeppnissjónarmiðum, að fénýta aflaheimildir til niðurgreiðslu á hráefni í eigin vinnslur."

Yfirlýsing Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍU) er hinsvegar eftirfarandi:

„Starfshópur um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða hefur nú skilað skýrslu sinni. Í starfshópnum myndaðist breið samstaða um að byggja áfram á aflamarkskerfi og fara svokallaða samningaleið. Sú leið grundvallast á samningum ríkisins og rétthafa aflaheimilda um langtíma afnotarétt og skýrum ákvæðum um framlengingu samninga."


Tengdar fréttir

Vilja semja við kvótaeigendur um nýtingarrétt á aflaheimildum

Meirihluti sáttanefndar um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða leggur til að samið verði við kvótaeigendur um nýtingarrétt á aflaheimildum til ákveðins tíma gegn leigugjaldi. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar sem var afhent ráðherra nú í morgun. Þá er einnig lagt til að fiskveiðiauðlindin verði skilgreind sem þjóðareign í stjórnarskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×