Innlent

Eldur í bíl og ekið á vélhjólamann

Valur Grettisson skrifar
Slökkviliðið var kallað út vegna bíls sem kviknaði í. Þeir voru fljótir að ráða niðurlögum eldsins en talsverðan reyk lagði frá bílnum.
Slökkviliðið var kallað út vegna bíls sem kviknaði í. Þeir voru fljótir að ráða niðurlögum eldsins en talsverðan reyk lagði frá bílnum. Mynd / Pjétur.

Mikill erill hefur verið hjá slökkviliði og sjúkraflutningamönnum í dag. Slökkviliðið var meðal annars kallað upp í Grafarvog í dag vegna elds í vélarhúddi bíls. Um minniháttar atvik var að ræða.

Þá var allt tiltækt slökkvilið kallað að Hátúni síðdegis en í fyrstu var talið að eldur hefði læst sig í þaki blokkar. Í ljós kom að eldurinn var í ruslageymslu fjölbýlishúss og greiðlega gekk að slökkva eldinn.

Sjúkraflutningamenn voru kallaðir út vegna tveggja umferðaslysa. Annars vegar var ekið aftan á bifreið og þurfti að flytja farþega á spítala vegna þessa. Þá var ekið á vélhjólamann á Reykjanesbrautinni en hann slapp furðu vel og afþakkaði að láta að flytja sig á spítala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×