Innlent

Hreppur flyst á milli landsvæða

Krossnes á Ströndum.
Krossnes á Ströndum.

Bæjarhreppur á Ströndum kemur til með að tilheyra Norðurlandi vestra en ekki Vestfjörðum, samkvæmt þingsályktunartillögu sem lögð hefur verið fram á Alþingi. Frá þessu er greint á vef Reykhólahrepps.

„Þessi breyting varðar svæðaskiptingu sem notuð verður til grundvallar við gerð sóknar­áætlana fyrir einstök landsvæði, en þær eru hluti af byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar. Að öðru leyti breytist landafræðin ekki," segir á Reykholar.is.

„Bæjarhreppur er allur sunnan Bitrufjarðar og þess vegna ekki á sjálfum Vestfjarðakjálkanum eins og hann er venjulega skilgreindur." Jafnframt er tiltekið að eftir að nýr vegur um Arnkötlu­dal hafi verið tekinn í notkun hafi Bæjarhreppur „færst fjær Vestfjörðum". - óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×