Ari nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins 5. júlí 2010 21:37 Ari Matthíasson er nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins. „
Þetta leggst bara mjög vel í mig, þetta er mjög spennandi starf og mikil örgrun," segir Ari Matthíasson nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins. Starfið var auglýst til umsóknar í lok maímánaðar og rann umsóknarfrestur út þann 14. júní síðastliðinn. Tuttugu og fimm umsóknir bárust og mun Ari hefjast störf þegar leikhúsið tekur aftur til starfa að loknu sumarleyfi. Hann segir í samtali við Vísi að starfið sé mikil ögrun því núna séu erfiðir tímar í rekstri hjá fyrirtækjum og ríkisfyrirtækjum. „Ég held að það séu miklir möguleikar í stöðunni. Ég mun skoða reksturinn og fara yfir hann og sjá hvar er hægt að gera betur," segir Ari. Ari er menntaður leikari, með BFA gráðu í leiklist frá Leiklistarskóla Íslands, MBA gráðu í stjórnun og rekstri frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Ari starfaði sem leikari í fjölda ára og tók meðal annars þátt í um 40 uppfærslum í atvinnuleikhúsum, mest með Leikfélagi Reykjavíkur, þar sem hann var fastráðinn í 10 ár. Hann hefur leikið í kvikmyndum og sjónvarpi og unnið sem leikstjóri, auk þess að hafa staðið að framleiðslu sýninga og leikhúsrekstri. Utan leikhússins hefur Ari einnig fjölbreytta starfsreynslu, en hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri með ábyrgð á rekstri og áætlanagerð, unnið að stefnumótun og markaðsráðgjöf, komið að verkefnastjórnun ýmissa fyrirtækja og stofnana, auk þess að hafa reynslu af opinberri stjórnsýslu. Ari hefur einnig starfað sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík. Ari hefur þannig bæði fjölbreytta menntun og víðtæka reynslu sem ætti að nýtast honum vel í starfi sem framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins. Í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu segir. „Við í Þjóðleikhúsinu hlökkum til samstarfsins við Ara um leið og við þökkum Tómasi Zoega, fráfarandi rekstrarstjóra frábært samstarf undanfarin ár."
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira