Innlent

Íbúar á Grund sakna Leiðarljóss

Erla Hlynsdóttir skrifar
Mynd: Valgarður

Aðdáendur sápuóperunnar Leiðarljóss, eða Guiding light, eru ófáir hér á landi. Þættirnir hafa lengi verið í sýningu hjá Ríkissjónvarpinu en þeir voru teknir tímabundið af dagskrá þegar Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu fór fram í sumar.

Til stóð að hefja aftur sýningar á Leiðarljósi að móti loknu en síðan í júlí hafa starfsmenn RÚV staðið í samningaviðræðum um áframhaldandi kaup á þáttunum. Viðræðurnar hafa gengið seint og illa en þær eru nú á lokastigi. Fullur vilji er hjá RÚV til að halda sýningunum áfram og er vonast til að samningaviðræðum ljúki sem allra fyrst. Þegar samningar hafa náðst tekur um viku að koma þáttunum aftur í loftið.

Á dvalarheimilum aldraðra víða um land hafa skapast vissar hefðir í kring um Leiðarljós en nýir þættir voru sýndir fjórum sinnum í viku, auk endursýninga.

Guðbjörg R. Guðmundsdóttir, samskiptafulltrúi á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, segir íbúana þar halda mjög upp á Leiðarljós. „Það verður mikil kæti hér ef þættirnir verða teknir aftur til sýninga," segir hún. „Hér hafa heilu hóparnir safnast saman fyrir sjónvarpið og fólk lifir sig alveg inn í heimilislífið í Leiðarljósi."

Þættirnir voru sýndir seinni hluta dags þegar formlegri dagskrá á vistheimilum er að mestu lokið. „Þetta er frekar dauður tími núna. Þess vegna var alveg frábært að Leiðarljós var á dagskrá á einmitt þessum tíma dagsins þegar fólk var oft bara að bíða eftir kvöldmatnum."

Að sögn Guðbjargar hafa íbúar á Grund þó lítið kvartað eftir að Leiðarljós var tekið af dagskrá. „Roskið fólk er svo nægjusamt. En ég veit að það verður mjög ánægt að fá Leiðarljós aftur," segir hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×