Íbúar á Grund sakna Leiðarljóss Erla Hlynsdóttir skrifar 14. september 2010 14:32 Mynd: Valgarður
Aðdáendur sápuóperunnar Leiðarljóss, eða Guiding light, eru ófáir hér á landi. Þættirnir hafa lengi verið í sýningu hjá Ríkissjónvarpinu en þeir voru teknir tímabundið af dagskrá þegar Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu fór fram í sumar. Til stóð að hefja aftur sýningar á Leiðarljósi að móti loknu en síðan í júlí hafa starfsmenn RÚV staðið í samningaviðræðum um áframhaldandi kaup á þáttunum. Viðræðurnar hafa gengið seint og illa en þær eru nú á lokastigi. Fullur vilji er hjá RÚV til að halda sýningunum áfram og er vonast til að samningaviðræðum ljúki sem allra fyrst. Þegar samningar hafa náðst tekur um viku að koma þáttunum aftur í loftið. Á dvalarheimilum aldraðra víða um land hafa skapast vissar hefðir í kring um Leiðarljós en nýir þættir voru sýndir fjórum sinnum í viku, auk endursýninga. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir, samskiptafulltrúi á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, segir íbúana þar halda mjög upp á Leiðarljós. „Það verður mikil kæti hér ef þættirnir verða teknir aftur til sýninga," segir hún. „Hér hafa heilu hóparnir safnast saman fyrir sjónvarpið og fólk lifir sig alveg inn í heimilislífið í Leiðarljósi." Þættirnir voru sýndir seinni hluta dags þegar formlegri dagskrá á vistheimilum er að mestu lokið. „Þetta er frekar dauður tími núna. Þess vegna var alveg frábært að Leiðarljós var á dagskrá á einmitt þessum tíma dagsins þegar fólk var oft bara að bíða eftir kvöldmatnum." Að sögn Guðbjargar hafa íbúar á Grund þó lítið kvartað eftir að Leiðarljós var tekið af dagskrá. „Roskið fólk er svo nægjusamt. En ég veit að það verður mjög ánægt að fá Leiðarljós aftur," segir hún.
Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira