Innlent

Forseti Alþingis ræddi við mótmælendur - aftur mótmælt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slökkvilið og lögregla stóðu vakt í mótmælunum á mánudag. Mynd/ Valli.
Slökkvilið og lögregla stóðu vakt í mótmælunum á mánudag. Mynd/ Valli.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, boðaði fimm konur sem stóðu að baki mótmælunum við setningu Alþingis og við stefnuræðu forsætisráðherra á fund til sín í morgun. Á fundinum var rætt um ástand þinghússins eftir mótmælin. Kostnaður vegna skemmda á húsinu nemur allt að sex milljónum króna. Fjórar kvennanna áttu heimangengt á fundinn.

Ásta Hafberg, ein þeirra sem var boðuð á fundinn, segist hafa verið nokkuð ánægð með hann. „Hún hafði samband við mig í gærkvöldi, eða seinni partinn einhvern tímann, og spurði mig hvort við gætum hist í dag. Meira svona í því yfirskini að ræða ástand Alþingishússins og hvernig þessi mótmæli færu með það," segir Ásta Hafberg.

Ásta Hafberg segir að þær hafi gert forseta Alþingis ljóst að þær stæðu fyrir friðsamlegum ásláttarmótmælum. „Við höfum reynt að hafa skikk á þeim sem eru á staðnum ef við höfum vitað að það væri eitthvað eggjakast í gangi. En við getum ekki svarað fyrir alla sem koma þarna niðureftir og hvernig fólk fær útrás fyrir sína reiði og sína biturð," segir Ásta Hafberg. Hún segir að þær hafi síðan farið ítarlega yfir ástand þjóðmála með forseta Alþingis. Eftir standi að sér finnist það vera fáránleg staða að þurfa að standa fyrir framan Alþingishúsið og berja tunnur til að einhver hlusti. Ásta Hafberg segir að forseti Alþingis hafi hlustað á þeirra sjónarmið.

Ásta Hafberg segir að mótmæli séu fyrirhuguð næsta þriðjudag. Hún er bjartsýn á að mótmælin geti farið vel fram. Tunnuslátturinn hafi gert það að verkum að einhversstaðar sé rödd fólksins farin að heyrast. „Þetta hljómar rosalega klént en þetta er svona," segir Ásta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×