Innlent

Niðurskurði harðlega mótmælt

Mótmælaalda ríður nú yfir vegna boðaðs niðurskurðar í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Mikill uggur er meðal íbúa og óttast fólk um framtíð sveitarfélaganna. Mörg þúsund manns mótmæltu í gær og í dag og hafa fleiri mótmælafundir verið boðaðir á næstu dögum.

Mótmælin eru einstök og líklega þau stærstu sem sést hafa á landsbyggðinni. Samtals mótmæltu fjögur þúsund manns á borgarafundum á Húsavík, Ísafirði og Reykjanesbæ í gær. Mótmælt var í Vestmannaeyjum í dag. Um fimm til sex hundruð manns komu þar saman á fundi en eftir það hélt hópurinn á sjúkrahúsið þar sem það tókst í hendur og myndaði verndarhring um húsið. Borgarafundir eru fyrirhugaðir á Sauðárkróki, Selfossi og Austurlandi á næstu dögum.

Stjórn BSRB segir að með niðurskurðinum sé öryggi íbúa á svæðunum stofnað í hættu. BSRB telur ámælisvert að ríkisstjórnin skeri niður í hefðbundnum kvennastéttum. Það sé úr takti við áherslur hennar sjálfrar um kynjaða hagstjórn.

Fréttastofa var viðstödd fundinn á Húsavík í gær. Áhyggjur íbúa þar endurspegla ugginn um allt land.

„Miðað við það sem Steingrímur J. sagði árið 2007 þá átti þetta að verða einn af hornsteinum fyrir einhverja heilsueflingu, en það nær ekki lengra. Eins kom Ögmundur hérna fyrir kosningarnar síðustu og sagði að menn þyrftu ekkert að óttast hérna. En annað kom á daginn. Þetta er bara bull," segir Stefán Stefánsson, íbúi á Húsavík.

Sigrún Ingvarsdóttir, íbúi á Húsavík, segir: „Ég held að það sé tími til kominn að núverandi stjórnvöld fari að hugsa sinn gang og hlusta á íbúa þessa lands."

Þá segir Ásgerður Arnardóttir, sem einnig er íbúi á Húsavík: „Þetta er bara skelfilegt. Við erum hrædd og reið. Það er eiginlega verið að gera óbúandi hérna."

„Forsendurnar fyrir því að margir búa hérna kannski bresta, forsendurnar fyrir því að foreldrar sannfæra börnin," segir Sveinn Aðalsteinsson, íbúi á Húsavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×