Innlent

Fjörutíu fangar sviku út atvinnuleysisbætur

Fjörutíu fangar hafa þegið atvinnuleysisbætur á þessu ári. Dæmi eru um að einstaklingar hafi setið í fangelsi í nokkra mánuði og svikið út atvinnuleysisbætur um leið. Áætlaður sparnaður vegna eftirlitsstarfsemi Vinnumálastofnunar er um 700 milljónir króna á eins árs tímabili.

Hópur manna hjá Vinnumálastofnun hefur í rúmt ár unnið að því að upplýsa bótasvik. Í byrjun árs fékkst lagaheimild til að samkeyra upplýsingar Vinnumálastofnunar við ýmsar stofnanir í samfélaginu. Sú samkeyrsla hefur nú skilað þeim árangri að hópnum hefur tekist að svipta hulunni af hundruðum bótasvika. Meðal annars er búið að samkeyra gögn við Fangelsismálastofnun. Niðurstaðan er þessi: Fjörutíu fangar á bak við lás og slá hafa þegið atvinnuleysisbætur á þessu ári. Dæmi eru um að fangar sem setið hafa inni í marga mánuði hafi þegið atvinnuleysisbætur á sama tíma. Þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur þurfa að staðfesta atvinnuleit rafrænt mánaðarlega. Þetta virðist ekki hafa verið hindrun fyrir fanganna en grunur leikur á að skráningar hafi farið fram innan veggja fangelsanna.

Á þessu ári hafa borist tæplega áttahundruð ábendingar um bótasvik. Langflestar snúa að svartri atvinnustarfsemi og að einstaklingum sem eru erlendis og þiggja atvinnuleysisbætur um leið. Dæmi eru um að fólk hafi verið erlendis svo mánuðum skiptir en samt sem áður þegið atvinnuleysisbætur. Misjafnt er hvort bótagreiðslur séu stöðvaðar eða krafist endurgreiðslu. Vinnumálastofnun hefur leyfi til að leggja ofan á ofgreiðslur 15% álag. Með eftirlitsstarfsemi Vinnumálastofnunar er gert ráð fyrir að komið hafi verið í veg fyrir að um 700 milljónir króna hafi verið sviknar út í bætur á um eins árs tímabili. Sú upphæð er tvöfalt hærri en sá niðurskurður sem áætlaður er á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×