Innlent

Ökufantur og sprengjuvargur handteknir

Karl á þrítugsaldri var staðinn að hraðakstri í Ártúnsbrekku í Reykjavík í gærmorgun en bíll hans mældist á 137 kílómetra hraða. Að auki var maðurinn að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað.

Viðkomandi hefur alloft áður gerst sekur um umferðarlagabrot. Hann má búast við því að verða sviptur ökuréttindum.

Á Akranesi var tilkynnt um sprengingu í vikunni. Reyndist það var ruslatunna sem hafði verið sprengd í loft upp og sá sem var að verki var unglingspiltur með flugelda. Hann náðist og þarf hann að greiða bætur fyrir skemmdirnar sem hann olli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×