Innlent

Sextán ára stúlka velti bil á miklum hraða

Sextán ára stúlka og 19 ára piltur voru flutt á slysadeild Landsspítalans eftir að bíll, sem stúlkan ók, fór út af Vatnsleysustrandarvegi laust fyrir miðnætti, valt þar nokkrar veltur og gjör eyðilagðist.

Þau munu ekki alvarlega slösuð en voru látin dvelja á sjúkrahúsinu í nótt til öryggis. Stúlkan var að sjálfsögðu réttindalaus, auk þess sem hún sagðist hafa verið á um það bil 120 kílómetra hraða þegar slysið varð, en þar um slóðir er 70 kílómetra hámarkshraði.

Hún er einnig grunuð um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×