Innlent

Gat ekki fallist á ályktunina

Einar K. Guðfinnsson Taldi ályktunina of hliðholla aðild Íslands.Fréttablaðið/Pjetur
Einar K. Guðfinnsson Taldi ályktunina of hliðholla aðild Íslands.Fréttablaðið/Pjetur

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vildi ekki standa að ályktun sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins, sem hélt sinn fyrsta fund á þriðjudag.

„Ég taldi þessi ályktun vera of hliðholla hugmyndum um aðild Íslands að Evrópusambandinu til að ég gæti undirritað hana,“ sagði Einar, sem var á fundinum í fjarveru Bjarna Benediktssonar.

Árni Þór Sigurðsson, hinn íslenski formaður nefndarinnar, segir að ályktuninni hafi verið breytt mikið eftir að hún var kynnt nefndarmönnum í síðustu viku.

„Það komu fram nokkrar athuga­semdir, meðal annars frá sjálfstæðismönnum, og þær voru allar teknar til greina,“ segir Árni Þór.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×