Fjárhagsvandanum ekki reddað með tattúi og bleikum jakkafötum Þorbjörn Þórðarson skrifar 8. október 2010 18:23
Reykjavíkurborg þarf að greiða tvö hundruð milljónum króna meira á ári í rafmagn og hita vegna gjaldskrárhækkana Orkuveitunnar. Þetta jafngildir rekstri tveggja meðalstórra leikskóla í Reykjavík. Borgarfulltrúi segir að vandi borgarsjóðs verði ekki leystur með bleikum jakkafötum og tattúum. Gjaldskrárhækkanirnar hjá OR bitna því ekki aðeins á reykvískum fjölskyldum og fyrirtækjum því embættismenn borgarinnar hafa nú reiknað út að gjaldskrárhækkanirnar hækki útgjöld borgarsjóðs um tvö hundruð milljónir króna á ári. Þetta eru peningar sem fara í raun úr einum vasa í annan, því borgin á Orkuveituna. Hins vegar er fyrirtækið dótturfélag í svokölluðum b-hluta, meðan rekstur almannaþjónustu er í a-hluta. Borgin hefur líka misst spón úr aski sínum af öðrum ástæðum því tekin var ákvörðun á aðalfundi OR að greiða ekki út arð til borgarinnar sem eiganda. En hvaðan eiga peningarnir að koma? Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi stjórnarmaður í OR, segir að gjaldskrárhækkun fyrirtækisins hafi verið vanhugsuð. „Það er augljóst að það þarf að gera ráð fyrir þessari útgjaldaaukningu með einhverjum hætti, með takmarkaðri þjónustu væntanlega. Ég bendi á það t.d að fyrir þessa peninga má reka tvo leikskóla, eða jafnvel þrjá í heilt ár," segir Júlíus Vífill. Aðstoðarmaður borgarstjóra segir tengingu við þjónustuskerðingu „skrípaleik“Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir Jón Gnarr fyrir ranga forgangsröðun. Fjármálum borgarinnar verði ekki bjargað með bleikum jakkafötum og húðflúrum. Hér er Jón Gnarr í bleiku fötunum, en þau voru klæðskerasniðin á hann og klæðist hann þeim til að sýna samstöðu með árveknisátaki gegn krabbameini í konum.Athugun á ársreikningum leikskólasviðs Reykjavíkurborgar staðfesti þessi orð Júlíusar Vífils því hún leiddi ljós að langflestir leikskólar í borginni eru reknir fyrir umtalsvert lægri fjárhæð, nokkuð undir hundrað milljónum. Júlíus Vífill segir að forsvarsmenn meirihlutans hafi ekki gefið svör við því hvernig eigi að mæta þessum útgjöldum borgarsjóðs. „Nú er setið yfir fjárhagsáætlanagerð vegna næsta árs sem er gríðarlega erfitt verkefni og henni verður ekki reddað fyrir horn með tattúum og bleikum jakkafötum," segir Júlíus Vífill.S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra, sagði í samtali við fréttastofu í dag að gjaldskrárhækkanir OR hefðu verið nauðsynlegar, enginn gæti haldið öðru fram. S. Björn sagði að tenging gjaldskrárhækkana við hugsanlega þjónustuskerðingu væri skrípaleikur. Staða borgarinnar væri erfið, en verið væri að nýta þá peninga sem væru til eins vel og hægt er.
Tengdar fréttir Gjaldskrárhækkanir OR kosta borgarsjóð hundruð milljóna Rekstrarkostnaður Reykjavíkurborgar gæti aukist um hundruð milljóna króna vegna gjaldskrárhækkana Orkuveitu Reykjavíkur, segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG. 9. september 2010 21:18 Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira
Gjaldskrárhækkanir OR kosta borgarsjóð hundruð milljóna Rekstrarkostnaður Reykjavíkurborgar gæti aukist um hundruð milljóna króna vegna gjaldskrárhækkana Orkuveitu Reykjavíkur, segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG. 9. september 2010 21:18