Innlent

Niðurfærslur bitna á lífeyrisþegum

Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir útilokað að fara í almennar niðurfærslu lána án þess að skerða greiðslur til ellilífeyrisþega.

Talið er að almenn niðurfærsla skulda muni kosta á bilinu tvö hundruð til tvöhundruð og tuttugu milljarða króna. Íbúðalánasjóður, bankarnir og lífeyrissjóðirnir taka skellinn ef af þessu verður.

Ríkisstjórnin vinnur nú að því að finna nýjar leiðir til að taka á skuldavandanum og er búist við stífum fundarhöldum næstu daga.

„Hagsmunasamtök heimilanna telja að það sé svigrúm í bönkunum vegna þess að það voru afskrifað milli gömlu og nýju bankana og telja að þeir hafi svigrúm. Bankarnir telja aftur á móti að þeir þurfi að nýta það í afskriftir þar sem þarf að ganga miklu lengra en verið að tala um af því varðar almennar niðurfærslur. Þetta þurfum við að fara yfir. Það mun eitthvað lenda á lífeyrissjóðunum ef það verður farin þessi leið og við þurfum að meta hvaða áhrif það hefur," segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.

Í tillögum Hagsmuna samtaka heimilanna er lögð á það áhersla að tap lífeyrissjóðanna verði ekki til þess að núverandi lífeyrisþegar þurfi að taka á sig skerðingu.

Eignirnar hafa áhrif á réttindin

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, segir ekki hægt að fella niður eða færa niður skuldir án þess að skerða lífeyri. „Það er ekki hægt. Eigendur lífeyrissjóðanna eru sjóðsfélagarnir sjálfir og um leið og við erum að lækka eignir sjóðanna þar með lækka lífeyrisréttindi þeirra sem eru að greiða í sjóðinn og líka þeirra sem eru að fá bætur."





Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.Mynd/Anton Brink
Hrafn segist ekki nefnt einhverjar prósentur. „Ég get það ekki, en þarna er um að ræða verulega fjármuni. Ef við tökum til að mynda sjóðsfélagalánin þá er það rúmlega 30 milljarðar sama og kostnaðurinn við stórframkvæmdir í vegagerð sem menn eru að velta fyrir sér."

Jóhanna: Spyrjum ekki AGS

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að framlengja heimild til frestunar á nauðungarsölum á íbúðarhúsnæði um fimm mánuði eða til loka mars á næsta ári. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur hins vegar lagst gegn frekari frestun.

„Þegar við stöndum frammi fyrir því að 240 heimili séu að fara á uppboð í þessum mánuði þá spurjum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ekki að því hvort að við getum gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir það," segir Jóhanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×