Innlent

Skipt um rúður í Alþingishúsinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Iðnaðarmenn voru að skipta um rúður í Alþingishúsinu í morgun. Mynd/ Sigurjón.
Iðnaðarmenn voru að skipta um rúður í Alþingishúsinu í morgun. Mynd/ Sigurjón.
Iðnaðarmenn voru í óða önn að skipta um rúður í Alþingishúsinu í morgun. Sjö rúður voru brotnar þar í fyrrinótt og enn fleiri á mánudagskvöldið þegar stefnuræða forsætisráðherra fór fram.

Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, segist vel geta trúað því að kostnaður Alþingis vegna skemmda í tengslum við mótmælin sé kominn upp í sex milljónir króna. „Það er bæði kostnaður við að endurnýja glerið og uppsetning þess og svo þarf oft að mála og laga pósta og annað slíkt," segir Helgi. Við það bætist þrif og þvottur. „Hann fer fram á nóttunni og er ansi dýr," segir Helgi.

Mótmælin sem fram fóru á föstudag eru þau stærstu frá því að hagkerfið hrundi á haustmánuðum 2008. Um átta þúsund manns mættu í miðbæinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×