Innlent

Tjarnarbíó opnað að nýju

Tjarnarbíó opnað að nýju endurgert. Jóhann G. Jóhannsson, formaður Sjálfstæðu leikhúsanna, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi Forseti Íslands, en hún var einn af stofnendum Grímu sem var fyrsta sjálfstæða leikhúsið sem notaði Tjarnarbíó, og Jón Gnarr, borgarstjóri í Tjarnarbíói síðdegis.
Tjarnarbíó opnað að nýju endurgert. Jóhann G. Jóhannsson, formaður Sjálfstæðu leikhúsanna, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi Forseti Íslands, en hún var einn af stofnendum Grímu sem var fyrsta sjálfstæða leikhúsið sem notaði Tjarnarbíó, og Jón Gnarr, borgarstjóri í Tjarnarbíói síðdegis.
Nærri hundrað ára gamalt hús í hjarta Reykjavíkur, sem til stóð að loka fyrir fimm árum, var í dag opnað með pompi og pragt eftir gagngerar endurbætur. Tjarnarbíó er húsið og það var borgarstjóri Reykjavíkur sem opnaði það formlega í viðeigandi skærbleikum jakkafötum á þessum baráttudegi gegn krabbameini kvenna. Sirkus Íslands og Margrét Eir skemmtu fólki við opnunina.

Tjarnarbíó var byggt sem íshús árið 1913 og síðar nýtt sem frjálsíþróttahús. Því var breytt í kvikmyndahús árið 1942 og fljótlega jafnframt nýtt sem leikhús. Þar hefur verið dansað, sungið, leikið og sýndar kvikmyndir og minnisverðar tilraunir gerðar í þessum greinum. Bandalag sjálfstæðra leikhúsa hefur rekið húsið fyrir borgina á annan áratug - fyrst í skjóli Íþrótta- og tómstundaráðs og síðan Menningar- og ferðamálaráðs

Árið 2007 var samþykkt í borgarráði að ráðast í endurgerð þess með það fyrir augum að bæta aðstöðu fyrir sviðslistir, kvikmyndasýningar og móttöku gesta sem sækja viðburði í húsinu. Áætlun um endurbætur fólst í að endurskipuleggja núverandi byggingu, stækkun baksviðsbyggingar Suðurgötumegin, nýbyggingu í porti og anddyrisbyggingu Tjarnargötumegin.

Gleðiefni

Framkvæmdir hófust 1. apríl 2008. Ráðgert var að taka húsið í notkun ári seinna en ófyrirséðar tafir hafa síðan orðið bæði vegna þess að ástand hússins var verra en talið var í upphafi, fornleifarannsókna og ófyrirséðs kostnaðarauka, að því er fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra.

Jón Gnarr sagði í ræðu sinni í Tjarnarbíói að það væri mikið gleðiefni að endurbótum skuli nú vera lokið og tilganginum náð. „Von okkar og trú er að Tjarnarbíó megi aftur verða vagga sjálfstæðra listamanna hér í miðborg Reykjavíkur."

Menningarfélagið Tjarnarbíó sér um reksturinn

Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar hefur fyrir hönd borgarinnar gert samstarfssamning við Menningarfélagið Tjarnarbíó um reksturinn næstu þrjú árin. Markmið hans er að skapa miðstöð fyrir sviðslistir og aðra menningarviðburði þar sem hægt verði að leigja aðstöðu á viðráðanlegu verði. Fjölbreytilegir menningarviðburðir njóti aðgangs að húsinu þó starfsemi tengd sviðslistum, tónlist og kvikmyndum séu í forgangi.

Þá er einnig stefnt að því að listuppeldi barna og ungs fólks sé sinnt þar, að hluti starfseminnar höfði til erlendra ferðamanna, sinni alþjóðlegum tengslum og verði til þess að auka framboð á alþjóðlegum menningarviðburðum í Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×