Tjarnarbíó opnað að nýju 8. október 2010 19:36 Tjarnarbíó opnað að nýju endurgert. Jóhann G. Jóhannsson, formaður Sjálfstæðu leikhúsanna, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi Forseti Íslands, en hún var einn af stofnendum Grímu sem var fyrsta sjálfstæða leikhúsið sem notaði Tjarnarbíó, og Jón Gnarr, borgarstjóri í Tjarnarbíói síðdegis.
Nærri hundrað ára gamalt hús í hjarta Reykjavíkur, sem til stóð að loka fyrir fimm árum, var í dag opnað með pompi og pragt eftir gagngerar endurbætur. Tjarnarbíó er húsið og það var borgarstjóri Reykjavíkur sem opnaði það formlega í viðeigandi skærbleikum jakkafötum á þessum baráttudegi gegn krabbameini kvenna. Sirkus Íslands og Margrét Eir skemmtu fólki við opnunina. Tjarnarbíó var byggt sem íshús árið 1913 og síðar nýtt sem frjálsíþróttahús. Því var breytt í kvikmyndahús árið 1942 og fljótlega jafnframt nýtt sem leikhús. Þar hefur verið dansað, sungið, leikið og sýndar kvikmyndir og minnisverðar tilraunir gerðar í þessum greinum. Bandalag sjálfstæðra leikhúsa hefur rekið húsið fyrir borgina á annan áratug - fyrst í skjóli Íþrótta- og tómstundaráðs og síðan Menningar- og ferðamálaráðs Árið 2007 var samþykkt í borgarráði að ráðast í endurgerð þess með það fyrir augum að bæta aðstöðu fyrir sviðslistir, kvikmyndasýningar og móttöku gesta sem sækja viðburði í húsinu. Áætlun um endurbætur fólst í að endurskipuleggja núverandi byggingu, stækkun baksviðsbyggingar Suðurgötumegin, nýbyggingu í porti og anddyrisbyggingu Tjarnargötumegin. Gleðiefni Framkvæmdir hófust 1. apríl 2008. Ráðgert var að taka húsið í notkun ári seinna en ófyrirséðar tafir hafa síðan orðið bæði vegna þess að ástand hússins var verra en talið var í upphafi, fornleifarannsókna og ófyrirséðs kostnaðarauka, að því er fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra. Jón Gnarr sagði í ræðu sinni í Tjarnarbíói að það væri mikið gleðiefni að endurbótum skuli nú vera lokið og tilganginum náð. „Von okkar og trú er að Tjarnarbíó megi aftur verða vagga sjálfstæðra listamanna hér í miðborg Reykjavíkur."Menningarfélagið Tjarnarbíó sér um reksturinn Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar hefur fyrir hönd borgarinnar gert samstarfssamning við Menningarfélagið Tjarnarbíó um reksturinn næstu þrjú árin. Markmið hans er að skapa miðstöð fyrir sviðslistir og aðra menningarviðburði þar sem hægt verði að leigja aðstöðu á viðráðanlegu verði. Fjölbreytilegir menningarviðburðir njóti aðgangs að húsinu þó starfsemi tengd sviðslistum, tónlist og kvikmyndum séu í forgangi. Þá er einnig stefnt að því að listuppeldi barna og ungs fólks sé sinnt þar, að hluti starfseminnar höfði til erlendra ferðamanna, sinni alþjóðlegum tengslum og verði til þess að auka framboð á alþjóðlegum menningarviðburðum í Reykjavík.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira