Innlent

Þingmenn lofa að vinda ofan af niðurskurðinum

Krefjast þjónustu heima Starfsmenn Heilbrigðistofnunar Suðurnesja settu svip á mótmæli gegn niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á svæðinu.Mynd/Víkurfréttir
Krefjast þjónustu heima Starfsmenn Heilbrigðistofnunar Suðurnesja settu svip á mótmæli gegn niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á svæðinu.Mynd/Víkurfréttir

„Það er varla hægt að ætlast til þess að eitt prósent af íbúum landsins taki á sig sig tólf til þrettán prósent af niðurskurðinum í heilbrigðiskerfinu,“ sagði Bergur Elías Ágústsson, bæjar­stjóri í Norðurþingi, eftir um þrettán hundruð manna borgarfund á Húsavík í gær.

Fundurinn í gær var sá fjölmennasti á Húsavík fyrr og síðar. Sjö af tíu þingmönnum kjördæmis­ins mættu á fundinn. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga að skera niður um fjörtíu prósent. „En það gleðilega er að það var ekki betur að heyra en þingmenn kjördæmisins ætli að vinda ofan af þeim boðskap sem við höfum fengið,“ segir Bergur.

Reyknesingar fjölmenntu á borgarafund í Stapa til að mótmæla fjórðungs niðurskurði hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Í Vestamannaeyjum mætti fjöldi íbúa á opinn fund til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði þar. Myndaði fólk hring í kringum sjúkrahúsið.

Stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Austurlands komu saman á skyndifund í gær. Sagt er allt níutíu manns þar geti misst vinnuna.

Á Ísafirði var einnig borgarafundur í gærkvöldi en honum lauk ekki áður en Fréttablaðið fór í prentun.

Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra var boðinn á þrjá þessara funda. Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarkona ráðherrans, segir hann ekki hafa viljað gera upp á milli staðanna og því mætt á engan fundanna. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×