Innlent

Sparnaði hugsanlega dreift á fleiri stofnanir

Guðbjartur Hannesson.
Guðbjartur Hannesson. Mynd/Pjetur
Heilbrigðisráðherra útilokar ekki að niðurskurðinum verði dreift á fleiri heilbrigðisstofnanir til að koma í veg fyrir að þjónusta skerðist of mikið í ákveðnum landshlutum.

Heilbrigðisráðherra ætlar að funda með forstöðumönnum heilbrigðisstofnanna á næstu vikum til að fara yfir niðurskurðar tillögurnar.

„Mér finnst eðlilegra að við reynum að fara heildstætt yfir það hvar er hægt að jafna þjónustuna. Þess vegna ætla ég ekki að svara um það hvort horfið verður til baka. Ég hef varað stofnanir við sem hafa fengið lítinn niðurskurð að það gæti komið meira á þær," segir Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra.

Hann segir hugsanlegt að niðurskurðinum verði dreift á fleiri stofnanir. „Svo verðum við að skoða þetta heildstætt þegar það kemur ný hagspá, hvernig tekjuáætlanir og annað verða. Við skulum gefa okkur smá tíma og anda en það er eðlilegt að fólk skuli vera hrætt og óánægt. Við hlustum á það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×