Gleymdu að stimpla sig en vilja samt atvinnuleysisbætur Erla Hlynsdóttir skrifar 8. október 2010 11:38
Tvö mál bíða afgreiðslu úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þar sem einstaklingar krefjast þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa staðfest atvinnuleit sína eins og lög gera ráð fyrir. Nefndin úrskurðaði fyrr á þessu ári að manni sem láðist að staðfesta atvinnuleit sína í ágúst og september 2009 ætti engu að síður að fá greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið. Vinnumálastofnun neitaði að greiða bæturnar með vísan í að hann hefði ekki fylgt reglum um staðfestingu atvinnuleitar. Maðurinn kærði þá ákvörðun til úrskurðarnefnar um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, sem komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri lagastoð til að synja manninum um greiðslu. Í úrskurði nefndarinnar segir að hvergi í gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um þá skyldu atvinnuleitanda að skrá sig í virkri atvinnuleit með reglubundnu millibili. Þar var bent á að ráðherra gæti sett reglugerð sem gerði slíkt að skyldu. Það hefði hins vegar ekki verið gert þegar mál mannsins kom upp. Í framhaldi af þessu voru gerðar breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingabætur sem tóku gildi 1. janúar 2010. Sjötta grein nýrra laga hljómar svo: „Vinnumálastofnun er heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunna að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum. Skal hinn tryggði þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara." Vinnumálastofnun lítur svo á að með þessum breytinum hafi verið fest í sessi það fyrirkomulag stofnunarinnar að krefjast þess að fólk staðfesti atvinnuleit sína með reglulegu millibili, eða „stimpli" sig eins og sagt er. Þrátt fyrir að þessar breytingar hafi átt sér stað hafa nú tveir kært synjun Vinnumálastofnunar á greiðslu atvinnuleysisbóta vegna þess að atvinnuleit var ekki staðfest. Þær upplýsingar fengust hjá Vinnumálastofnun að litið væri svo á að samkvæmt nýjum lögum hefðu stofnunin fulla heimild til að synja viðkomandi um greiðslu.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira