Innlent

Næstum 70% andvígir því að fyrirtæki styrki stjórnmálamenn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um 68% Íslendinga eru andvígir því að íslenskum stjórnmálamönnum og stjórnmálasamtökum sé heimilt að taka á mótum fjárframlögum frá fyrirtækjum. Um 15% eru því hlynntir en 17% eru hvorki hlynntir né andvígir því. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Hreyfinguna í september.

Könnunin var gerð dagana 8. - 15. september. Úrtakið var 1184 manns á öllu landinu sem voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup. Svarhlutfall var 67,9%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×