Innlent

Mótmæltu í Eyjum

Frá útifundinum á Stakkagerðistúni í dag.
Frá útifundinum á Stakkagerðistúni í dag. Mynd/Gísli Óskarsson

Fjölmargir Vestmannaeyingar komu saman á útifundi á Stakkagerðistúni seinnipartinn í dag. Þar var niðurskurður í heilbrigðiskerfinu ræddur. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár munu Vestmannaeyingar verða fyrir barðinu á niðurskurði, eins og svo mörg önnur sveitarfélög.

Á fundinum var aðgerðarleysi ríkisstjórnar og tillögum um niðurskurð á framlögum ríkisins til rekstrar Heilbrigiðsstofnunar Vestmannaeyja árið 2011 mótmælt.

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu á að skera niður um tæp 24% til Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, sem þýðir að mati framkvæmdastjóra stofnunarinnar að loka þurfi skurðstofu, hætta fæðingarþjónustu, fækka sjúkrarúmum og segja upp allt að 30 starfsmönnum.

Frá Vestmannaeyjum í dag.Mynd/Gísli Óskarsson
Bæjarstjórinn Elliði Vignisson sagði Eyjamenn standa frammi fyrir ógn. „Þetta er ekki ógn eins og við erum vön.  Þetta er ekki hættan á aflabresti. Þetta er ekki hættan á því að válynd veður grandi fiskibátum okkar. Þetta er ekki hættan á því að eldgos eyði hér byggð. Nei! Þetta er hættan á því að ríkisvaldið leggi hér niður þá heilbrigðisþjónustu sem við þurfum. Þetta er hættan á því að borgarmiðuð stjórnvöld skapi hér bráða hættu. Þetta er hættan á því að sú kreppa sem búin var til á höfuðborgarsvæðinu verði greidd af okkur sem ekki tókum þátt í gengdarlausum dansi um gullkálfinn,“ sagði Elliði í ræðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×