Innlent

Gissur Pétursson gefur kost á sér á stjórnlagaþing

Gissur Pétursson.
Gissur Pétursson.

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar ætlar að gefa kost á sér til setu á stjórnlagaþingi. Þetta staðfesti Gissur í samtali við fréttastofu. Framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út eftir tæpan hálfan mánuð en ekki eru tiltækar upplýsingar um hversu margir hafa þegar boðið sig fram. Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri hefur einnig lýst yfir framboði, en það gerði hann á bloggsíðu sinni í vikunni.

Kosið verður til stjórnlagaþings laugardaginn 27. nóvember næstkomandi en gert er ráð fyrir að stjórnlagaþingið komi saman eigi síðar en 15. febrúar á næsta ári til að endurskoða stjórnarskrá Íslands.

Landskjörstjórn mun upplýsa það fyrir 3. nóvember næstkomandi hverjir bjóða sig fram til stjórnlagaþings og gerir það á vefsíðu sinni og á kosningavef dómsmála- og mannréttindaráðuneytsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×