Munaðarlausum boðið til Akureyrar 1. febrúar 2010 20:11
Leikfélag Akureyrar hefur boðið leiksýningunni Munaðarlaus að vera Óvissusýning vetrarins hjá LA. Sýningin Munaðarlaus hefur heldur betur slegið í gegn á undanförnum vikum þar sem hún hefur verið sýnd í Norræna húsinu við glimrandi viðtökur og hefur verið fullt á nær allar sýningar. Í tilkynningu frá hópnum kemur fram að ákveðið hafi verið að nýta ferðina norður og sýna einnig á Vopnafirði og Egilsstöðum. „Sýningin hefur vakið athygli fyrir að bjóða upp á tekjutengda verðskrá, en miðaverðið er mishátt eftir því í hvaða tekjuflokki áhorfendur eru," segir ennfremur í tilkynningunni. „Það er hinsvegar undir þeim komið að ákvarða hvaða tekjuflokki þeir telja sig tilheyra. Lágtekjufólk greiðir 2000 krónur, miðtekjufólk greiðir 3000 krónur en hátekjufólk greiðir 5000 krónur. Athygli hefur vakið hversu mikið af lágtekjufólki hefur sótt sýninguna og greinilegt að kreppan hefur snert leikhúsgesti þjóðarinnar." Í tilefni að því að vera boðið norður og í ljósi mikilla vinsælda og eftirspurnar hefur leikhópurinn ákveðið að efna til tveggja aukasýninga en það verða allra síðustu sýningar á Munaðarlaus í Reykjavík. Þessar síðustu sýningar eru í Norræna Húsinu fimmtudaginn 4. febrúar og laugardaginn 6. febrúar og hefjast sýningar kl.19.00. Miðasala á sýningarnar í Norræna Húsinu er í síma 8959919 og einnig er hægt að panta miða með því að senda tölvupóst á netfangið munadarlaus@gmail.com. Munaðarlaus verður sýnd í Rýminu hjá Leikfélagi Akureyrar og miðasala er í síma 4 600 200 kl. 13-17 og á www.leikfelag.is. Leikstjóri sýningarinnar er Vignir Rafn Valþórsson sem jafnframt þýðir verkið. Leikhópurinn samanstendur af ungum leikurum, Hannesi Óla Ágústssyni, Stefáni Benedikt Vilhelmssyni og Tinnu Lind Gunnarsdóttur, sem ákváðu að fjárfesta í réttinum á þessu nýja og vinsæla verki og setja það upp sjálf - en hópurinn hefur ekki sótt um neina styrki fyrir uppsetningunni.
Mest lesið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Lífið samstarf Bob Mackie er látinn Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira